Baráttudaga kvenna ekki getið í Almanaki HÍ

Enginn af bar­áttu­dögum kvenna er til­tek­inn í Almanaki fyrir Ísland 2019, sem Háskóli Íslands gefur út. Þar má meðal ann­ars finna sjó­manna­dag­inn, Dag íslenskrar nátt­úru og Val­ent­ínus­ar­dag­inn, að ónefndum tugum messu­daga. Ábyrgð­ar­maður útgáf­unnar sér ekk­ert athuga­vert við það að dag­ana vanti, meðan for­maður Kven­rétt­inda­fé­lags Íslands er hissa á Háskól­anum.

Baráttudaga kvenna ekki getið í Almanaki HÍ
Konur krefj­ast jafn­réttis á Arn­ar­hóli Fjöldi kvenna gekk út af vinnu­stöðum sínum í fyrra­dag, 24. októ­ber, til að taka þátt í Kvenna­frídeg­inum sem hefur fest sig í sessi sem einn mik­il­væg­asti bar­áttu­dagur íslenskra kvenna fyrir jafn­rétti. Dagsins er ekki getið í alm­an­aki Háskóla Íslands fyrir árið 2020. Mynd: Davíð Þór

Kvenna­frí­dag­inn, 24. októ­ber, er hvergi að finna í Almanaki Háskóla Íslands fyrir árið 2019. Þar er heldur ekki 8. mars, sem er alþjóð­legur bar­áttu­dagur kvenna, né heldur 19. júní, sem er hátíðis- og bar­áttu­dagur íslenskra kvenna. Þann dag árið 1915 hlutu konur kosn­inga­rétt á Íslandi.

Almanak fyrir Ísland 2019Það hefur verið gefið út árlega allt frá árinu 1875. Alm­an­akið inni­heldur upp­lýs­ingar á borð við sjáv­ar­föll og gang him­in­tungla en jafn­framt upp­lýs­ingar um hina ýmsu merk­is­daga.

Á meðal þeirra daga sem fletta má upp í Almanaki Háskóla Íslands eru bónda­dagur og konu­dagur, Val­ent­ínus­ar­dag­ur­inn, bollu­dagur, sprengi­dagur og ösku­dagur og Bibl­íu­dag­ur­inn. Einnig eru þar minna þekktir dagar í nútíma­sam­fé­lagi, svo sem vinnu­hjúa­skil­dagur. Þá eru þar til­teknar allar mögu­legar messur, Brígid­ar­messa, Gregoriu­messa, Ambrós­íus­messa, svo aðeins fáeinar séu nefndar, og föstur, eins og níu­vikna­fasta og jóla­fasta. Aðrar dag­setn­ingar sem tengj­ast kristni eru áber­andi. Þannig má meðal ann­ars …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár