Bjarni valdi Illuga í enn eina stjórnina

Bjarni Benediktsson fjármála­ráðherra tilnefndi Illuga Gunnarsson sem formann stjórnar Orkubús Vestfjarða. Gegnir hann nú þremur stöðum sem ráðherrar Sjálfstæðis­flokks hafa valið hann í eftir að hann hætti í stjórn­málum. Tekjur hans af þessu, auk biðlauna, hafa verið að meðaltali rúm 1,1 milljón á mánuði.

Illugi Gunnarsson og Bjarni Benediktsson
Illugi Gunn­ars­son og Bjarni Bene­dikts­son Ráð­herrar Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafa valið Illuga Gunn­ars­son í þrjú opin­ber verk­efni síðan Illugi hætti á þingi í árs­byrjun 2017. Mynd: Skjáskot úr fréttatíma RÚV

Illugi Gunnarsson, fyrr­verandi menntamála­ráðherra og þingmaður Sjálfstæðis­flokksins til margra ára, var tilnefndur af Bjarna Benedikts­syni, fjármála- og efnahags­ráðherra, í stjórn Orkubús Vestfjarða ohf. í maí. Sem formaður stjórnarinnar fær hann 252 þúsund krónur á mánuði í laun. Einn stjórnar­fundur er í hverjum mánuði og greiðir félagið fyrir flug Illuga frá Reykjavík til Ísafjarðar á fundina auk uppihalds.

Þetta kemur fram í svari Orkubús Vestfjarða ohf. við fyrir­spurn Stundarinnar um málið. Illugi var kjörinn í stjórn á aðalfundi félagsins 15. maí. Tók hann við af Viðari Helgasyni, sérfræðingi hjá fjármála- og efnahags­ráðuneytinu, sem gegnt hafði starfi formanns stjórnar frá 2011. Laun formanns voru hækkuð úr 240 þúsund krónum á sama aðalfundi og þegar Illugi var skipaður í stjórn.

Hefur Illugi fengið að minnsta kosti 24 milljónir króna fyrir þrjár stöður á vegum hins opinbera sem samflokksmenn hans hafa skipað hann í, auk biðlauna, frá því hann hætti á Alþingi og sem ráðherra í janúar 2017. Tekjur hans af þessum þremur verkefnum og biðlaununum hafa þannig numið rúmri 1,1 milljón króna að meðaltali á mánuði.

Illugi Gunnarsson tilkynnti um brott­hvarf sitt úr stjórn­málum um ári eftir að Orku Energy-málið svokallaða kom upp þar sem hann var staðinn að því að hafa selt Hauki Harðar­syni, stjórnar­formanni Orku Energy og fyrrum vinnu­veitanda sínum, íbúð sína vegna fjárhags­örðugleika og fengið að leigja hana af honum. Hagsmuna­tengslin lágu í þagnar­gildi þegar Illugi undir­ritaði samstarfs­samning við kínverska ríkið í maí 2015 og tryggði Orku Energy stöðu „framkvæmdar­aðila“ fyrir hönd íslenska ríkisins, en venjulega fá aðeins ríkis­fyrirtæki eða ríkis­stofnanir slíka stöðu í samningum milli einstakra ríkja.

Á meðal þeirra sem gagnrýndu Illuga harðlega var Páll Magnússon, núverandi þingmaður Sjálfstæðis­flokksins og formaður allsherjar- og menntamála­nefndar Alþingis. Sagði hann að fyrir lægju „sterkar vísbendingar um brot menntamála­ráðherra á hegningar­lagaákvæðum um mútuþægni“ og að pólitísk spilling á Íslandi hefði „sjaldan birst jafn hrein og krist­altær“. 

Valinn í þrjár stöður til viðbótar við biðlaun

Stundin hefur áður greint frá því að Illugi fékk greiddar 8,3 milljónir króna fyrir setu í nefnd um endur­skoðun ramma peninga­stefnu. Var hann skipaður í nefndina af Bjarna, sem þá var forsætis­ráðherra. Illugi og Bjarni hafa verið bandamenn í Sjálfstæðis­flokknum undan­farna áratugi. 

Þá var hann skipaður af flokks­bróður sínum Jóni Gunnars­syni, þáverandi samgöngu- og sveitar­stjórnar­ráðherra, sem formaður stjórnar Byggða­stofnunar. Hafði hann fengið greiddar tæpar 3,6 milljónir króna frá apríl 2017 til júníloka 2018 fyrir setu í stjórninni.

Loks átti hann rétt á biðlaunum til sex mánaða, bæði sem þingmaður og ráðherra, alls 10.957.638 kr. Fékk hann þau greidd að fullu, þrátt fyrir að hafa gegnt öðrum störfum á sama tímabili, sem að öllu jöfnu hefðu átt að leiða til skerðingar biðlauna, samkvæmt upplýsingum frá fjármála­skrifstofu Alþingis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár