Ríkisvaldið skikkaði börn til að umgangast barnaníðinga

Enn í dag hafa gögn frá Barnahúsi, frásagnir barna af kynferðis­ofbeldi og vottorð fagaðila oft takmarkað vægi í umgengnis­málum. Alþingi hefur ekki séð ástæðu til að hnykkja á vernd barna gegn ofbeldi og þingmaður Sjálfstæðis­flokksins segist hafa meiri áhyggjur af ofstækis­fullum tálmunar­mæðrum heldur en af umgengni barna við ofbeldis­menn.

Neydd til að umgangast kvalara sinn
Neydd til að umgang­ast kval­ara sinn Ekki þarf að leita nema örfá ár aftur í tím­ann til að finna dæmi um að rík­is­valdið skikki stúlku til að umgang­ast föður sem hafði verið dæmdur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn henni. Mynd: Shutterstock

Sýslumanns­embætti hafa ítrekað skikkað börn til að umgangast feður sem hafa fengið refsidóma fyrir ofbeldi gegn börnunum sjálfum, mæðrum þeirra og systkinum.  

Allt fram til ársins 2013, þegar breytingar á barna­lögum tóku gildi, var ofbeldi föður gegn móður almennt ekki talið hafa þýðingu við ákvörðun sýslu­manns um umgengni föður við börnin sín. Ekki þarf að leita nema örfá ár aftur í tímann til að finna dæmi um að stúlka sé skikkuð til að umgangast föður sem hafði verið dæmdur fyrir kynferðis­brot gegn henni. 

Fjölskyldu­svið sýslu­mannsins á höfuð­borgar­svæðinu getur ekki upplýst hversu oft frá 2013 hafa verið kveðnir upp úrskurðir í umgengnis- og dagsektar­málum þar sem mælt er fyrir um að barn skuli umgangast foreldri gegn vilja sínum þrátt fyrir að foreldrið hafi verið dæmt fyrir ofbeldi gegn barninu eða systkinum þess. Því er að miklu leyti á huldu hvernig sýslumanns­embættið hefur túlkað ákvæði barnalaga í umgengnis- og dagsektar­málum eftir að lögunum var breytt árið 2012 og skerpt á vernd barna gegn ofbeldi.

Gögn sem Stundin hefur aflað með óformlegum hætti gefa þó vísbendingar um laga­framkvæmdina. Ljóst er að sýslu­maðurinn á höfuð­borgar­svæðinu kvað upp úrskurði bæði í fyrra og hitt í fyrra þar sem viðvörunarorð fagfólks og vísbendingar um kynferðis­brot, meðal annars fram­burður barna hjá meðferðar­aðilum og í Barnahúsi, voru ekki talin hafa sérstakt vægi við ákvörðun umgengni við föður þeirra. 

Gögn frá Barnahúsi skiptu litlu

Í umgengnis­úrskurði sem sýslu­maðurinn á höfuð­borgar­svæðinu kvað upp árið 2017 er sú staðreynd að móðir sakaði barns­föður sinn um heimilis­ofbeldi án þess að það leiddi til ákæru notuð gegn henni til að réttlæta aukna umgengni föðurins við barnið.

Í öðrum úrskurði sem Stundin fjallaði um taldi sýslumanns­embættið læknabréf, upplýsingar úr Barnahúsi, álit sálfræðinga og frásagnir barna af meintum kynferðis­brotum föður þeirra hafa „takmarkaða þýðingu“ og sló því föstu að vanlíðan barnanna væri sprottin af „tengslarofi“ þeirra við föður. 

Í síðara málinu lágu meðal annars fyrir loka­skýrslur úr Barnahúsi þar sem fram kom að „brot og framkoma föður“ hefðu haft „mikil áhrif á líðan“ barnanna og bréf barna­geðlæknis sem taldi það að þvinga börnin til umgengni við föðurinn „læknis­fræðilega ekki forsvaranlegt“ og óttaðist að slíkt gæti haft „varanleg áhrif á þroska og geðheilsu þeirra til framtíðar“. Í úrskurði sínum brýndi þó sýslu­maður fyrir móðurinni að hvetja börnin til að umgangast föður sinn.

Þegar úrskurður sýslu­manns var kærður til dómsmála­ráðuneytisins lagði ráðuneytið áherslu á að í Barnahúsi hefði sjónum eingöngu verið beint að hugsanlegu kynferðis­ofbeldi en ekki því hvort börnin vildu umgangast meintan geranda. Taldi ráðuneytið því brýnt að „komast að því hver raun­verulegur vilji barnanna sé og hvort það kunni að vera að hann sé litaður af neikvæðum viðhorfum móður í garð föður“. 

Viðbrögð Alþingis engin

Stundin hefur frá því í maí 2018 fjallað margsinnis og ítarlega um  hvernig sýslu­maður horfir kerfis­bundið framhjá gögnum um kynferðis­brot og heimilis­ofbeldi þegar teknar eru ákvarðarnir um umgengni og dagsektir. Sú umfjöllun hefur byggt á umfangs­miklum gögnum sem Stundin hefur aflað, en auk þess hefur fræðileg umfjöllun um barnarétt og stjórnsýslu­framkvæmd í umgengnis­málum verið höfð til hliðsjónar. Staðreyndirnar sem dregnar hafa verið fram benda eindregið til þess að breytingarnar sem gerðar voru á barna­lögum árið 2012 hafi ekki skilað tilætluðum árangri.  

Ekkert af því sem fram hefur komið í umfjöllun Stundarinnar hefur orðið til þess að Alþingi, æðsta valda­stofnun landsins sem ber ábyrgð á lagarammanum sem um mála­flokkinn gildir, finni sig knúið til að kalla eftir upplýsingum frá sýslu­manni eða dómsmála­ráðuneytinu eða ráðast í breytingar á laga­umhverfi umgengnis­mála til að hnykkja á vernd barna gegn heimilis­ofbeldi. Og af þing­málaskrá ríkis­stjórnarinnar að dæma eru engar breytingar fram undan í mála­flokknum á næstu misserum. 

Meiri áhyggjur af ofstækisfullum mæðrum 

Nýlega skrifuðu 156 konur undir ákall til þingmanna og vörpuðu meðal annars fram þessum spurningum: „Hvenær þykir ykkur nóg komið? Hafa frásagnir þolenda af ofbeldi í nánum samböndum og fjölskyldum ekki farið nógu hátt til að ná athygli ykkar? Hversu hávær og skerandi þurfa sársaukaópin að vera til að þau komi ykkur við? Hversu mörg líf þarf að leggja í rúst og hversu marga þarf að brjóta niður og kúga til að þið opnið augun?“ 

Í yfir­lýsingunni voru jafnframt þingmenn Sjálfstæðis­flokksins gagn­rýndir harðlega fyrir að hafa lagt öðru sinni fram frumvarp um refsingar fyrir tálmun á umgengni. Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðis­flokksins og fyrsti flutnings­maður frum­varpsins, brást við yfir­lýsingu kvennanna í viðtali við Harmageddon þann 9. október síðastliðinn.

„Það bara gilda leik­reglur réttar­ríkisins í þessu sem öllum öðrum ágreiningi,“ sagði hann. „Þetta eru reglurnar og ef fólk ætlar ekki að fara eftir þeim og vera með í þeim þá hef ég miklu meiri áhyggjur af því heldur en ef einhver ofbeldis­maður hefur einhvern tímann gerst brotlegur, að hann umgangist barnið sitt.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár