Helgi Seljan hættir í Kveik og tekur sér frí

„Ég er ekki fyrsti mað­ur­inn sem fer fram úr sér í vinnu“, segir Helgi. Tekur sér árs­frí frá fréttum. Ætlar að hlaða batt­er­íin, sinna fjöl­skyld­unni og kúpla sig niður.

Helgi Seljan hættir í Kveik og tekur sér frí
Tekur sér frí Helgi seg­ist ekki vera fyrsti mað­ur­inn til að fara fram úr sér í vinnu. Mynd: Kveikur

H

elgi Seljan, frétta­maður á RÚV, mun ekki vinna að frétta­skýr­inga­þætt­inum Kveik í vetur og er far­inn í frí frá frétta­mennsku. Helgi hefur í rúman ára­tug unnið í Kast­ljósi og síðar Kveik, við frétta­skýr­ingar og frétta­mennsku en segir að hann sé nú orð­inn þreyttur og þurfi að sinna sjálfum sér.

„Ég bara veit það ekki,“ svar­aði Helgi þegar hann var spurður hvað hann hyggð­ist nú fara að gera. „Ég bað um árs­frí í vor frá Kveik og frétta­stof­unni. Ég var bara orð­inn þreyttur á þessu harki eitt­hvað. Mér fannst það kannski ekk­ert orðið leið­in­legt en ég var bara orð­inn þreyttur, ég veit ekki alveg hvernig best er að lýsa því. Kveikur gerir bara meiri kröfur heldur en að ég geti keypt mér flóka­inniskó og hugsað málið eitt­hvað. Svo ég ákvað að fá mér frí.“

Helgi lítur á þetta árs­frí sem tíma til að hlaða batt­er­íin en hann stefnir að því að snúa aftur í frétta­mennsku síðar. „Já, stefnan er að gera það. Ég er núna að taka stutt frí sem ég á inni og svo getur vel verið að ég komi inn í afleys­ingar á RÚV í ein­hverju öðru bara, ein­hverri dag­skrár­gerð eða slíku. Það er bara ekki alveg komið í ljós. Annars sé ég bara til. Ég er búinn að vera á sjónum aðeins í haust en ástandið þar er nú svo sem þannig að það eru engin stór­kost­leg upp­grip þar. Það væri samt fínt að kom­ast aðeins meira á sjó­inn, ég hefði gott af því.“

Ætlar ekki að leika neinn jaxl

Helgi segir að álagið í frétta­mennsk­unni hafi verið mikið og oft hafi það verið erfitt, vinnu­tími ófjöl­skyldu­vænn og hann hafi bara fundið að nú væri nóg komið, í bili. „Þetta var bara búið að vera mikið álag í langan tíma og ég ætla ekki að fara leika neinn jaxl, þetta er bara oft erfitt. Ég er ekki fyrsti mað­ur­inn sem fer fram úr sér í vinnu. Ég held að það sé sann­gjarnt að segja að ég hafi gert það, eins og svo margir aðrir hafa gert. Þá er bara best að kúpla sig niður, kúpla sig aðeins út. Það er líka bara kom­inn tími til að ég taki til í geymsl­unni heima og eyði tíma með fjöl­skyld­unni minni. Við getum þá kannski farið að borða kvöld­mat saman, sem við höfum varla gert síðan stelp­urnar mínar fædd­ust.“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár