Forsetinn vitnaði í Stefán Karl og skoraði á þingmenn að beina sjónum að lýðheilsu

Guðni Th. Jóhann­es­son for­seti spurði hverju full­veldið skipti, ef fólki liði illa, og vitn­aði í Stefán Karl Stef­áns­son leik­ara.

Forsetinn vitnaði í Stefán Karl og skoraði á þingmenn að beina sjónum að lýðheilsu

„Til hvers er full­veldi ef fólki líður illa?“ spurði Guðni Th. Jóhann­es­son for­seti í ræðu sinni við þing­setn­ingu Alþingis í dag, og skor­aði á þing­menn að beina athygl­inni í auknum mæli að lýð­heilsu, geð­vernd, for­vörnum og for­virkum aðgerðum til að tryggja heill og ham­ingju - „og senni­lega spara fé til lengri tíma“. 

Guðni vitn­aði í leik­ar­ann Stefán Karl Stef­áns­son, sem lést 21. ágúst síð­ast­lið­inn. „Hvað er dýr­mæt­ara en heilsa og ham­ingja? Hvað skiptir máli þegar allt kemur til alls? Í sumar lést fyrir aldur fram Stefán Karl Stef­áns­son leik­ari og bar­áttu­maður fyrir bættum heimi, eftir langt stríð við ill­vígt mein. Slík glíma opnar oft augu fólks, bæði hinna veiku og þeirra sem nærri þeim standa. „Við sjáum lífið í öðru ljósi,“ sagði Stefán: „Maður dustar vit­leys­una í burtu og horfir svo­lítið á kjarna lífs­ins sem við ættum öll að gera.““

 „Um leið vitum við hins vegar af ærnum vanda, kvíða og van­líðan meðal of margra, ungra sem ald­inna, álagi og kulnun í starfi ...“

Hann sagði að þrátt fyrir að ham­ingja hér á landi mæld­ist mikil í könn­unum glímdu margir við erf­ið­leika. „Um leið vitum við hins vegar af ærnum vanda, kvíða og van­líðan meðal of margra, ungra sem ald­inna, álagi og kulnun í starfi, mis­notkun lyfja og vímu­efna, stundum með hörmu­legum afleið­ingum, vax­andi kostn­aði við að hlúa að sjúkum, fötl­uðum og öldruðum, auk allra ann­arra sem þurfa aðhlynn­ingar við.“

Guðni setti þann fyr­ir­vara á að ekki væri hægt að benda á „stór­á­föll eins til að segja öðrum að sætta sig bara við minni vanda“. Og hann tók fram að heil­brigt væri að deilt væri um málin. „Um margt er deilt, innan og utan þess­ara veggja, og þannig á það að vera í öfl­ugu lýð­ræð­is­sam­fé­lagi, í full­valda og sjálf­stæðu ríki.“

Þingsetningarræða Guðna í heild sinni

Haldin á hundrað ára afmælisári fullveldisins

Ég óska ykkur vel­farn­aðar í vanda­sömum störfum, ágætu alþing­is­menn. Ykkar bíða ærin verk, stór sem smá. Í ys og þys líð­andi stundar reyn­ist okkur stundum erfitt að greina á milli þess sem skiptir sköpum og hins sem fer í glatkistu tím­ans og geym­ist þar uns grúskarar og aðrir leita uppi vitn­is­burð og lær­dóm úr lið­inni tíð.

Í ár minn­umst við þess að öld er frá því að Ísland varð frjálst og full­valda ríki. Það voru svo sann­ar­lega tíma­mót, stór­tíð­indi sem vert er að hampa og halda á lofti. Aðdrag­and­inn var langur og margt í þeirri sögu má heita furðu­legt þegar litið er um öxl. Árum saman var þannig um það deilt af hörku í þessu húsi að mál­efni Íslands og Íslend­inga voru form­lega borin upp í rík­is­ráð­inu danska. Land­ráða­brigsl flugu, flokkar voru stofn­aðir og þeim sundrað um þetta hita­mál.

Eftir á að hyggja var það mest karp um keis­ar­ans skegg og þar að auki skiptu margir um skoðun eftir því hvernig vindar blésu.

En full­veldið fékkst 1918 og hér erum við enn, sjálf­stæð og full­valda þjóð, flestum öðrum efn­aðri, í frið­sömu sam­fé­lagi. Almenn­ingur nýtur hér rétt­inda og lífs­gæða sem fólk hefði vart látið sig dreyma um fyrir hund­rað árum. Þá gefa kann­anir til kynna að óvíða um heim sé lands­lýður eins ham­ingju­samur.

Um leið vitum við hins vegar af ærnum vanda, kvíða og van­líðan meðal of margra, ungra sem ald­inna, álagi og kulnun í starfi, mis­notkun lyfja og vímu­efna, stundum með hörmu­legum afleið­ingum, vax­andi kostn­aði við að hlúa að sjúkum, fötl­uðum og öldruðum, auk allra ann­arra sem þurfa aðhlynn­ingar við.

Hvað er dýr­mæt­ara en heilsa og ham­ingja? Til hvers er full­veldi ef fólki líður illa? Hvað skiptir máli þegar allt kemur til alls? Í sumar lést fyrir aldur fram Stefán Karl Stef­áns­son leik­ari og bar­áttu­maður fyrir bættum heimi, eftir langt stríð við ill­vígt mein. Slík glíma opnar oft augu fólks, bæði hinna veiku og þeirra sem nærri þeim standa. „Við sjáum lífið í öðru ljósi,“ sagði Stefán: 

„Maður dustar vit­leys­una í burtu og horfir svo­lítið á kjarna lífs­ins sem við ættum öll að gera.“

Nú skal var­ast að nota stór­á­föll eins til að segja öðrum að sætta sig bara við minni vanda. En margt má samt læra af æðru­leysi af þessu tagi, gild­is­mati og lífs­við­horfi. Og þegar við horfum saman fram á veg berum við von­andi gæfu til að takast á við hin þung­vægu verk­efni en staldra ekki um of við álita­mál sem falla svo með réttu í gleymsk­unnar dá eins og rík­is­ráðs­á­kvæðið á sínum tíma – og verja ekki heldur dýr­mætri orku í dæg­ur­þras, dusta frekar vit­leys­una í burtu.

Í stjórn­málum getur vissu­lega verið erfitt að greina á milli þess stóra og smáa í hita leiks­ins, vissu­lega verður aldrei ein­hugur um hvað eigi heima hvar í þeim dilka­drætti, og vissu­lega er örð­ugt að spá fyrir um óráðna fram­tíð; en við myndum án efa búa vel í hag­inn fyrir okkur sjálf, æsk­una og næstu kyn­slóðir með því að beina sjónum okkar í rík­ari mæli en áður að lýð­heilsu og geð­vernd, for­vörnum og for­virkum aðgerðum. Er þá ekki lastað það sem þegar er unnið í þeim efnum en með þessum hætti mætti auka heill og ham­ingju, og senni­lega spara fé til lengri tíma í leið­inni.

Ágætu alþing­is­menn: Um margt er deilt, innan og utan þess­ara veggja, og þannig á það að vera í öfl­ugu lýð­ræð­is­sam­fé­lagi, í full­valda og sjálf­stæðu ríki.

Engin ástæða er til að láta þess ógetið hér að þegar þing var sett fyrir ára­tug sáust blikur á lofti. Við tók banka­hrun og bús­á­halda­bylt­ing. Þá sortn­aði yfir landi og þjóð en bless­un­ar­lega birti til. Í þjóð­lífi og efna­hag skipt­ast á skin og skúrir, verum ætíð undir það búin. En fögnum því um leið sem hefur áunn­ist í áranna rás og stefnum að frek­ari fram­förum fyrir alla. Við Íslend­ingar erum frjáls þjóð í fögru landi. Hinn fyrsta des­em­ber minn­umst við hund­rað ára full­veldis. Stöndum þá saman, sýnum sjálfum okkur og öðrum að þrátt fyrir allt er það meira sem sam­einar okkur en það sem sundrar okkur. Og munum að lífið er núna.

Ég bið alþing­is­menn að rísa úr sætum og minn­ast ætt­jarð­ar­innar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár