„Yndið mitt, Stefán Karl Stefánsson, er látinn“

Stefán Karl Stef­áns­son leik­ari er fall­inn frá, 43 ára gam­all, eftir bar­áttu við ill­vígt krabba­mein.

„Yndið mitt, Stefán Karl Stefánsson, er látinn“
Stefán Karl og Steinunn Ólína Hjónin opn­uðu umræð­una um veik­indi og áhrif þeirra. Mynd: Kristinn Magnússon

Stefán Karl Stef­áns­son leik­ari er fall­inn frá eftir bar­áttu við krabba­mein und­an­farin miss­eri. 

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir, eig­in­kona Stefáns Karls, greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni.

„Yndið mitt, Stefán Karl Stef­áns­son, er lát­inn eftir tveggja ára bar­áttu við ill­vígt gall­ganga­krabba­mein. Stefán var fæddur 10. júlí 1975 og varð því 43 ára gam­all. Að ósk hins látna verður engin jarð­ar­för og jarð­neskum leifum dreift í kyrr­þey á úthafi fjær. Fjöl­skyldan þakkar auð­sýndan stuðn­ing og hlý­hug á und­an­gengnum árum og sendir hinum fjöl­mörgu vinum og aðdá­endum Stefáns Karls sínar inni­leg­ustu sam­úð­ar­kveðjur.“

Stefán Karl Stef­áns­sonÞakk­látur starfs­fólki Land­spít­al­ans.

Auk þess að hafa starfað sem leik­ari um ára­bil var Stefán Karl stofn­andi sam­tak­anna Regn­boga­börn árið 2002, til stuðn­ings börnum sem þurft hafa að þola ein­elti. Aðdrag­andi þess var að  hann varð sjálfur fyrir ein­elti sem barn og vildi nýta reynslu sína öðrum börnum til lið­sinnis.

Á síð­ustu árum rækt­aði Stefán Karl græn­meti og vildi stofn­setja stór­fellda græn­met­is­ræktun inn­an­dyra, svo­kallað „kál­ver“, í stað álvers í Helguvík.

Eftir að hann greind­ist með krabba­mein árið 2016 ræddi Stefán Karl veik­indin opin­skátt og var hann þakk­látur þeim sem sendu honum stuðn­ings- og bata­kveðjur. 

Í við­tali við Stundina í des­em­ber 2016 lýstu Stefán og Steinunn Ólína áhrifum þess fyrir hann og fjöl­skyld­una að hann skyldi grein­ast með krabba­mein sem er í flestum til­fellum ban­vænt. Aðeins 10 til 20 pró­sent sem grein­ast með gall­ganga­krabba­mein geta losnað við meinið með skurð­að­gerð.

„Þú verður bara að lifa hvern dag fyrir sig“

Stefán Karl sagði frá því að hann hefði reynt að halda lífi sínu áfram órösk­uðu og óháðu krabba­mein­inu að öðru leyti en óum­flýj­an­legt er. „Að fá svona grein­ingu er ekk­ert öðru­vísi en aðrir dagar að því leyt­inu til að þú lifir bara dag fyrir dag. Þú verður bara að gera það, sama hvort þú ert með grein­ingu á krabba­meini eða ekki. Þú verður bara að lifa hvern dag fyrir sig og láta honum nægja sína þján­ingu, og reyna bara að láta gott af þér leiða. Láta ekki kæfa þig og banna þér að tjá þig, vera gagn­rýn­inn, vera sann­gjarn, vera sjálfum þér sam­kvæmur og taka líka sénsa og áhættur, gera mis­tök, læra af þeim, allt þetta. Þetta breyt­ist ekk­ert, þó þú grein­ist með krabba­mein.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár