Drífa gefur kost á sér sem forseti ASÍ

Segir verk­efnið vera að auka lífs­gæði hinna mörgu og stemma stigu við græðgi hinna fáu.

Drífa gefur kost á sér sem forseti ASÍ

Drífa Snædal, fram­kvæmda­stjóri Starfs­greina­sam­bands­ins og fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri og vara­þing­maður Vinstri grænna, hefur ákveðið að gefa kost á sér sem for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands ASÍ. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu sem Drífa hefur birt á Facebook-síðu sinni. Kosið verður í emb­ætti for­seta á þingi ASÍ sem haldið verður 24.-26. októ­ber næst­kom­andi.

Í yfir­lýs­ingu Drífu kemur fram að hallað hafi undan fæti í sam­fé­lag­inu hér heima, sem og erlendis. „Græðgi er talin til kosta og auð­ur­inn hefur safn­ast á fáar hendur,“ skrifar Drífa og segir grunn­skil­yrði góðs lífs und­ir­seld spá­kaup­mennsku. Verka­lýðs­hreyf­ingin eigi í vök að verj­ast þegar komi að félags­legum und­ir­boðum og rétt­inda­brotum. Upp­lýs­ingum um lög, reglur og rétt­indi sé haldið frá fólki. Skatt­kerfið hafi verið sveigt í þágu hinna ríku, gegn vinn­andi fólki.

„Okkar bíður það verk­efni að auka lífs­gæði hinna mörgu og stemma stigu við græðgi hinna fáu. Verka­lýðs­hreyf­ingin er mik­il­væg sem aldrei fyrr og hún má ekki bregð­ast á ögur­stundu. Hér á landi starfar ein sterkasta verka­lýðs­hreyf­ing heims og það er mikið ábyrgða­hlut­verk að ná að sam­eina hana um hag okkar allra. Það verður mik­il­væg­asta verk­efni næsta for­seta ASÍ,“ skrifar Drífa og lýsir því yfir að hún gefi kost á sér í stól for­seta.

Drífa sagði sig úr Vinstri grænum í nóv­em­ber síð­ast­liðnum, sökum and­stöðu við stjórn­ar­sam­starf flokks­ins við Sjálf­stæð­is­flokk og Fram­sókn­ar­flokk. Í pistli sem Drífa birti þá sagði hún að í sam­starfi við Sjálf­stæð­is­flokk­inn myndu Vinstri græn neyð­ast til að verja ýmis konar óhæfu og mörkin í þeim efnum myndu fær­ast til, líkt og í ofbeld­is­sam­bandi.  „Þetta verður eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil, ef stjórnin end­ist svo lengi. Með ákvörð­un­inni um stjórn­ar­við­ræður setti flokk­inn niður, trú­verð­ug­leik­inn laskað­ist veru­lega og vinstrið á Íslandi mun eiga erfitt upp­dráttar næstu árin og ára­tug­ina.“

Drífa er þar með önnur til að gefa kost á sér í for­seta­stól­inn en Sverrir Mar Alberts­son, fram­kvæmda­stjóri Afls starfs­greina­sam­bands á Aust­ur­landi, hafði áður gefið út að hann gæfi kost á sér. 

Drífa tók við starfi fram­kvæmda­stjóra Starfs­greina­sam­bands­ins árið 2012 en starf­aði áður meðal ann­ars sem fram­kvæmda­stjóri Vinstri grænna og Samtaka um kvenna­at­hvarf. Hún er mennt­aður við­skipta­fræð­ingur, með meistara­gráðu í vinnu­rétti frá Háskól­anum í Lundi í Svíþjóð en hún er einnig mennt­aður tækni­teikn­ari. 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár