Íslenskir aðdáendur vildu að Tommy kæmi í „óvænta heimsókn“ á eigin kostnað

Aðdá­endur Tommy Robinson réttu honum sátta­hönd en bera tak­markað traust til hans. „Vinstri­menn eru sigri hrós­andi yfir því hvernig fór,“ segir í bréfi af lok­uðum spjall­hópi.

Íslenskir aðdáendur vildu að Tommy kæmi í „óvænta heimsókn“ á eigin kostnað

Sig­ur­freyr Jónasson, tals­maður Vakurs – sam­taka um evr­ópska menn­ingu, hafði sam­band við breska þjóð­ern­is­sinn­ann og hægriöfga­mann­inn Tommy Robinson þann 25. maí síð­ast­lið­inn og stakk upp á því að Tommy kæmi í óvænta heim­sókn til Íslands og stæði sjálfur straum af kostn­að­inum. Þannig gæti Tommy bætt fyrir þann skaða sem hann olli með því að hætta við Íslands­för og fyr­ir­lestur sem hann hugð­ist flytja hér­lendis í sum­ar­byrjun.

Greint er frá þessu á lok­uðum umræðu­hópi íslenskra stuðn­ings­manna Tommy Robinson á Facebook. Þar er bréfið sem Sig­ur­freyr sendi Tommy og sam­starfs­konu hans birt í heild. „Ég þarf varla að segja þér að vinstri­menn eru sigri hrós­andi yfir því hvernig fór með við­burð­inn. En ekki er öll von úti. Það er til leið til að kippa þessu í lag,“ skrifar Sig­ur­freyr [bréfið er skrifað á ensku, þýð­ingin er blaða­manns].

Brýnt að styrkveitendur og sjálfboðaliðar fái að hitta Tommy

Bréf­rit­ari útskýrir hug­mynd sína með eft­ir­far­andi hætti:

Sig­ur­freyr Jónassonsendi Tommy Robinson bréf og bað hann um að bæta fyrir þann skaða sem hann olli með því að hætta við Íslands­för­ina.

„Þú gætir komið í sumar (seinni hluta júní, fyrri hluta júlí eða í ágúst, því fyrr því betra en þó ekki of snemma í júní) í „óvænta heim­sókn“ til Íslands. Þú og þitt fólk gætuð komið, á eigin kostnað, í þrjá daga. Á fyrsta degi mynd­irðu veita þau við­töl sem fyr­ir­huguð voru (mynd­bands­við­tal við DV og útvarps­við­tal á Harma­geddon) og jafn­vel eitt í við­bót sem ég gæti komið í kring. Á öðrum degi gæt­irðu flutt fyr­ir­lest­ur­inn, sem stóð til að yrði fluttur á ráð­stefn­unni, með beinu streymi á Facebook og Twitter sem yrði til­kynntur í fjöl­miðla­við­töl­unum dag­inn áður og aug­lýstur á Facebook. Og á þriðja degi gæt­irðu hitt fólkið sem veitti fjár­styrki og varði tíma sínum í sjálf­boða­vinnu vegna við­burðar sem aldrei varð að veru­leika.“

Sig­ur­freyr segir að Tommy Robinson þyrfti ein­vörð­ungu að greiða fyrir hót­elgist­ingu, fram­færslu og flug frá Lúton. Vakur geti útvegað bíl­stjóra og „með því að leigja ekki ráð­stefnu­sal heldur aðeins streyma ræð­unni á net­inu gætum við sparað umtals­verðar fjár­hæðir“. Tekur hann fram að kostað hafi 462 þús­und krónur að leigja sal­inn á Grand Hótel. 

Enginn myndi auglýsa Tommy

Tommy Robinson olli aðdá­endum sínum miklum von­brigðum þegar hann afboð­aði komu sína til Íslands fyr­ir­vara­laust þann 16. maí síð­ast­lið­inn. Aðstoð­ar­maður Tommys greindi Sig­ur­frey frá því að Tommy kæmi ekki vegna dauðs­falls í fjöl­skyld­unni. „Ég vil vita hver dó,“ sagði þá Sig­ur­freyr í við­tali við DV eftir að hafa beðið eftir Tommy í tvo klukku­tíma á Kefla­vík­ur­flug­velli. 

„Ég vil vita hver dó“

Svo virð­ist sem sárin hafi ekki gróið til fulls. Að minnsta kosti ber Sig­ur­freyr afar tak­markað traust til Tommys og skrifar: „Heim­sóknin yrði ekki aug­lýst fyr­ir­fram. Enginn vill gera það ef þú skyldir aftur hætta við að koma. Hins vegar er ljóst að um leið og þú kemur til lands­ins mun fiski­sagan fljúga. Með þessu gætum við end­ur­heimt traust og þú gætir gert brag­ar­bót á sam­bandi þínu við aðdá­enda­hóp þinn hér á Íslandi. Þetta gæti einnig bætt fyrir þann skaða sem atburðir síð­ustu miss­era hafa haft á þau jákvæðu áhrif sem heim­sóknir Roberts Spencer og Christine Williams höfðu á Íslandi, þótt því miður hafi heim­sókn­irnar orðið þeim báðum dýr­keyptar eins og þú hlýtur að vita.“ Vísar þar Sig­ur­freyr lík­lega til ásak­ana um að eitrað hafi verið fyrir aft­ur­halds­mann­inum Roberti Spencer á Íslandi. 

Tommy losnaði úr fangelsi

Tals­maður Vakurs hvetur Tommy Robinson til að íhuga alvar­lega þær hug­myndir sem eru settar fram í bréf­inu. „Við verðum að taka á þessu með fag­legum hætti, halda áfram og snúa vörn í sókn.“ 

Tommy hefur gegnt for­ystu­hlut­verki í þjóð­ern­is­sam­tök­unum The English Defence League, var um tíma vara­for­maður Breska frels­is­flokks­ins og nýtur mik­illar virð­ingar meðal ras­ista, múslima­hat­ara og hægrirót­tæk­linga í Evrópu og Banda­ríkj­unum. 

Tommy Robinson losn­aði úr fangesi í gær þegar áfrýjund­ar­dóm­stóll úrskurð­aði um að ann­markar hefðu verið á máls­með­ferð­inni þegar hann var dæmdur til þrettán mán­aða fang­els­is­vistar fyrir að taka myndir af sak­born­ingum í kyn­ferð­is­brota­málum og lít­ils­virða þannig breskan dóm­stól. Áður hefur Tommy setið í fang­elsi fyrir fjár­svik og að villa á sér heim­ildir en jafn­framt verið dæmdur til að sinna sam­fé­lags­þjón­ustu vegna ógn­andi hegð­unar eftir íþrótta­við­burð í heimabæ sínum, Luton, þar sem Tommy hefur rekið ljósa­bekkja­stofu.

Nú, þegar Tommy er frjáls ferða sinna, ætlar Vakur að ítreka boð sitt til hans. „Látum ykkur vita hvað kemur út úr því,“ segir tals­maður Vakurs á lok­aða spjall­hópnum. „Heimsókn Tommy Robinson til Íslands er ekki lokið enn. Bara fyrri hálf­leikur búinn.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár