Meirihlutinn í Grindavík klofnaði við ráðningu bæjarstjóra

Ekki ein­ing um áfram­hald­andi ráðn­ingu Fannars Jón­as­sonar. Mið­flokk­ur­inn lagð­ist á sveif með Sjálf­stæð­is­flokki en full­trúi Fram­sókn­ar­flokks varð undir.

Ráðinn áfram
Ráðinn áfram Fannar Jónasson var ráð­inn bæj­ar­stjóri Grinda­víkur í árs­byrjun 2017 og hefur nú verið end­ur­ráð­inn til næstu fjög­urra ára. Mynd: Grindavíkurbær

Meiri­hluti bæj­ar­stjórnar Grinda­víkur klofn­aði þegar kom að því að ráða bæj­ar­stjóra á auka­fundi bæj­ar­stjórnar. Full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins greiddu atkvæði með áfram­hald­andi ráðn­ingu sitj­andi bæj­ar­stjóra, Fannars Jón­as­sonar, en full­trúi Fram­sókn­ar­flokks­ins vildi að Þor­steinn Gunn­ars­son yrði ráð­inn. Fór svo að bæj­ar­full­trúi Mið­flokks­ins, sem situr í minni­hluta, greiddi atkvæði með ráðn­ingu Fannars og fékk hann því fjögur atkvæði en Þor­steinn þrjú.

Nokkur órói mun hafa verið meðal starfs­manna Grinda­vík­ur­bæjar með sam­starf við bæj­ar­stjóra og hefur meðal ann­ars verið kvartað undan sam­skipta­örð­ug­leikum. Meðal ann­ars mun það hafa verið mat bæj­ar­full­trúa Sam­fylk­ing­ar­innar, Páls Vals Björns­sonar, að í því ljósi væri það bæj­ar­fé­lag­inu fyrir bestu að nýr bæj­ar­stjóri tæki við. Ekki varð hins vegar af því, sem fyrr segir.

Sigurður Óli Þór­leifs­son, bæj­ar­full­trúi Fram­sókn­ar­flokks­ins, segir í sam­tali við Stundina að það hafi verið orðið að sam­komu­lagi við gerð mál­efna­samn­ings í vor að aug­lýsa eftir bæj­ar­stjóra. „Við ákváðum að láta mál­efnin ganga fyrir. Við vissum að við værum ósam­mála um bæj­ara­stjóra­málin og ákváðum því að fara þessa leið, að aug­lýsa eftir bæj­ar­stjóra og fara með málið fyrir bæj­ar­stjórn. Það varð að sam­komu­lagi að báðir aðilar myndu una nið­ur­stöðu kosn­ingar innan bæj­ar­stjórnar. Okkur fannst þetta bara vera lýð­ræði í sinni fal­leg­ustu mynd.“

Spurður hvort hann hafi áhyggjur af því að hefja meiri­hluta­sam­starfið með þessum hætti, að ekki náist ein­ing um ráðn­ing bæj­ar­stjóra, neitar Sigurður Óli því. „Þetta er auð­vitað óvana­legt en við berum fullt traust til Fannars. Hann kom hins vegar inn á miðju síð­asta kjör­tíma­bili og við vildum bara kanna hvort að aðrir hæf­ari hefðu áhuga á starf­inu. Þor­steinn er heima­maður og við þekkjum hann vel og hann hefur gert góða hluti fyrir norðan. Það er ekki það að við treystum ekki Fannari enda er hann afbragðs­maður. Svona fór þetta bara. Það var ljóst frá því að við hófum sam­starf að svona ætti að fara að því og það er því alveg ein­ing milli okkar og Sjálf­stæð­is­flokks­ins.“

Sigurður Óli seg­ist ekki hafa áhyggjur af því að hans sam­starf við Fannar verði erf­ið­ara fyrir vikið. „Ég hef engar áhyggjur af því. Við erum báðir, að því er ég tel, bara miklir fag­menn og ég hef engar áhyggjur.“

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár