Samkeppniseftirlitið stöðvar gjaldtöku á rútustæðum við Leifsstöð

Isavia mis­not­aði mark­aðs­ráð­andi stöðu sína með óhóf­legri verð­lagn­ingu á bíla­stæð­unum, að mati Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Gray Line kvart­aði yfir óhóf­legri gjald­töku, en Strætó hefur einnig lýst óánægju með aðstöðu almenn­ings­sam­gangna við stöð­ina.

Samkeppniseftirlitið stöðvar gjaldtöku á rútustæðum við Leifsstöð
Flugstöð Leifs Eiríks­sonar Sam­keppn­is­eft­ir­litið telur Isavia hamla sam­keppni með gjald­töku á stæðum. Mynd: Shutterstock

Sam­keppn­is­eft­ir­litið tók í dag bráða­birgða­á­kvörðun þar sem Isavia ohf. er gert að stöðva tíma­bundið gjald­töku á ytri rútu­stæðum (fjar­stæðum) við Flugstöð Leifs Eiríks­sonar. Gjald­takan tók gildi þann 1. mars 2018, í fram­haldi af útboði og samn­ingum um nýt­ingu tveggja hóp­ferða­fyr­ir­tækja á stæðum við flug­stöðv­ar­bygg­ing­una (nær­stæði).

Kvörtun barst frá fyr­ir­tæk­inu Gray Line, sem missti aðstöðu á nær­stæð­unum í útboði í fyrra. Hóp­ferðir og Kynn­is­ferðir áttu hæstu boðin, en síð­ara fyr­ir­tækið er í eigu for­eldra og frænd­fólks Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.

„Upphæðin er 20 þús­und á hvern bíl, sem er nátt­úru­lega dýrasta bíla­stæða­gjald í heimi,“ segir Þórir Garð­ars­son, stjórn­ar­for­maður Gray Line. „Við ætl­uðum bara að halda áfram okkar starf­semi á bíla­stæð­unum þar sem allir hafa verið í sam­keppni, en vænt­an­lega telja ein­hverjir að það séu tengsl við útboðið.“

Málið þoldi ekki bið

Sam­keppn­is­eft­ir­litið telur að hátt­semi Isavia gangi gegn ákvæðum sam­keppn­islaga og tekur bráða­birgð­ar­á­kvörðun þar sem málið þolir ekki bið eftir end­an­legri ákvörðun. Eft­ir­litið telur senni­legt að Isavia hafi mis­notað mark­aðs­ráð­andi stöðu sína með óhóf­legri verð­lagn­ingu við gjald­töku fyrir notkun á fjar­stæðum. Jafn­framt mis­muni Isavia við­skipta­vinum í verð­lagn­ingu og skil­málum. Gildir bráða­birgða­á­kvörð­unin til 31. des­em­ber 2018.

„Verði ekk­ert að gert muni gjald­taka Isavia á fjar­stæðum hafa veru­leg skað­leg áhrif á rekstur fyr­ir­tækja sem nýta þurfi fjar­stæðin,“ segir í til­kynn­ingu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. „Þá liggur fyrir að gjöld vegna stæð­anna munu að óbreyttu hækka veru­lega þann 1. sept­em­ber nk., en þá verður svo­kall­aður afsláttur á aðlög­un­ar­tíma­bili felldur niður.“

Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur sent Isavia and­mæla­skjal þar sem félag­inu er gef­inn kostur á að koma sjón­ar­miðum og and­mælum á fram­færi áður en end­an­leg ákvörðun verður tekin í mál­inu.

Óánægja Strætó með stæðin

Engar merk­ingar eru innan Leifs­stöðvar sem benda komu­far­þegum á almenn­ings­sam­göngur. Stoppi­stöð Strætó við Kefla­vík­ur­flug­völl hefur verið færð frá útgangi komu­far­þega, þar sem hóp­bif­reiðar einka­að­ila eru stað­settar, og er nú brott­far­ar­megin.

For­svars­menn Strætó hafa óskað eftir því við Isavia að ferða­mönnum sé bent á vagn­ana til jafns við rútur og leigu­bíla. Í sam­tali við Stundina í jan­úar sagði upp­lýs­inga­full­trúi Strætó að slíkar merk­ingar yrðu settar upp á fyrstu mán­uðum árs­ins. Merk­ing­arnar eru ekki komnar upp.

„Einhver upp­lýs­inga­gjöf væri vel þegin, sama hver hún er.“

„Í þau skipti sem við höfum rætt við Isavia hefur þessu verið lofað,“ segir Guð­mundur Heiðar Helgason, upp­lýs­inga­full­trúi Strætó. „En ekk­ert hefur verið gert. Einhver upp­lýs­inga­gjöf væri vel þegin, sama hver hún er. Við værum til í að það væri hægt að vísa fólk­inu á réttan stað. Það eru margir sem vita ekk­ert hvar stöðin er stað­sett. Þeir töl­uðu áður um að hafa smá skilti fyrir utan, en það hefur ekki verið gert ennþá.“

Guðjón Helgason, upp­lýs­inga­full­trúi Isavia, segir að merk­ing­arnar verði bættar. Verk­efnið hafi hins vegar taf­ist vegna ann­arra verk­efna í Leifs­stöð og sum­ar­fría starfs­fólks. „Mér er sagt að haustið fari í upp­setn­ingu, ég var full­viss­aður um að þetta væri í vinnslu,“ segir Guðjón.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár