Gæti orðið versta sumar frá upphafi mælinga í Reykjavík

Trausti Jónsson veð­ur­fræð­ingur segir að veðrið í Reykja­vík í sumar minni á gamla tíma. Árin 1983 og 1984 hafi rignt allt sum­arið. Það óvenju­lega sé hversu góð sumur hafi verið á þess­ari öld. „Það hefur bara ekki gerst áður,“ segir Trausti.

Grátt í borginni
Grátt í borg­inni Í maí var úrkomu­met í Reykja­vík síðan mæl­ingar hófust og ekki hafa mælst færri sól­ar­stundir í júní­mán­uði frá árinu 1914. Júlí byrjar mjög illa að sögn veð­ur­fræð­ings.

það hefur í senn verið kalt, úrkomu­mikið og gott sem sól­ar­laust. Veð­ur­fræð­ing­ur­inn Trausti Jónsson segir þetta sumar þó langt í frá eins­dæmi þó svo það hafi ekki verið svona slæmt lengi.

Það sem af er sum­ars hefur rignt von úr viti á suð­vest­ur­horn­inu og hafa sól­skins­stundir í júní ekki mælst eins fáar í Reykja­vík síðan 1914. Júlí byrjar einnig mjög illa og er þetta kaldasta júlí­byrjun á öld­inni þó svo að það hafi ekki rignt mikið ennþá sam­kvæmt Trausta. „Þetta hefur ekki verið svona lengi, veðrið var svipað sum­arið 2006 en þá var að vísu aðeins hlýrra heldur en núna.“ Úr því sumri rætt­ist þó um miðjan júlí. Allt fram til 2013 var síðan alla jafna mjög gott veður í Reykja­vík yfir sum­arið, sem er óvenju­legt að sögn Trausta. „Það voru svo mörg góð sumur í röð, það hefur bara ekki gerst áður.“

 

 

Þrátt fyrir að sum­arið hafi hingað til verið slæmt á Suð­vest­ur­landi segir Trausti þó

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár