Ríkislögreglustjóri nefndi dreifendur nýnasistaáróðurs í skýrslu um hryðjuverkaógn

Aðilar sem dreifðu nýnas­ista­á­róðri í Hlíða­hverfi segj­ast tengdir hreyf­ingu sem Evr­ópu­lög­reglan hefur varað við. Rík­is­lög­reglu­stjóri fjall­aði um hreyf­ing­una í skýrslu um hættu af hryðju­verkum í fyrra.

Ríkislögreglustjóri nefndi dreifendur nýnasistaáróðurs í skýrslu um hryðjuverkaógn
Áróður nýnas­ista Nafn­lausir aðilar stærðu sig á net­inu af dreif­ingu áróð­urs í Hlíða­hverf­inu.

Rík­is­lög­reglu­stjóri fjall­aði um „The Nordic Resistance Movement“ í skýrslu sinni um mat á hættu af hryðju­verkum á síð­asta ári. Hreyf­ingin virð­ist nú hafa skotið rótum á Íslandi en aðilar sem segj­ast tengdir henni hafa dreift áróðri í Hlíða­hverfi í Reykja­vík í nafni „Norrænu mót­stöðu­hreyf­ing­ar­innar“.

Samtökin eru sam­an­sett af hópum í Svíþjóð, Finn­landi, Noregi, Danmörku, og nú Íslandi, sem vilja mynda nýtt sam­einað ríki Norð­ur­land­anna. Hóparnir á Norð­ur­löndum beita orð­ræðu nýnas­ista og hafa verið bendl­aðir við ofbeld­is­verk. Voru þrír menn tengdir sam­tök­unum í Svíþjóð dæmdir í fang­elsi í fyrra fyrir sprengju­árás í Gauta­borg.

„Evr­ópu­lög­reglan segir að ógnin geti lýst sér í ofbeld­is­verkum ein­stak­linga og hópa“

Í skýrslu sinni „Mat rík­is­lög­reglu­stjóra á hættu af hryðju­verkum“ frá jan­úar 2017, er fjallað sér­stak­lega á sam­tökin og sagt að Evr­ópu­lög­reglan (Europol) bendi á að slíkir póli­tískir öfga­hópar geri mál­efni flótta­fólks og hæl­is­leit­enda að deilu­efni, stuðli að sundr­ungu og beiti sér á sam­fé­lags­miðlum af gíf­ur­yrðum og hat­urs­orð­ræðu. „Vakin er athygli á að í sumum aðild­ar­ríkjum ESB hafi þess orðið vart að borg­arar hafi myndað eft­ir­lits­hópa sem fara um götur og hverfi,“ segir í skýrsl­unni. „Stjórn­völd í Finn­landi hafi upp­lýst að í sumum bæjum haldi „Finnska and­spyrnu­hreyf­ingin“ uppi slíku eft­ir­liti og segja hana vera hluta af „Norrænu and­spyrnu­hreyf­ing­unni“ en svo nefn­ist sam­tök skand­in­av­ískra þjóð­ern­issós­í­alista sem starf­ræki deildir í Svíþjóð, Noregi og Danmörku.“

Virðast ekki hafa vitað af íslenskri starfsemi

Embættið virð­ist ekki hafa vitað af starf­semi Íslands­deild­ar­innar undir nafn­inu Norð­ur­vígi þegar skýrslan kom út, en lén þess­ara aðila var skráð hjá ISNIC í maí 2016. Samkvæmt vef­síð­unni héldu sam­tökin viku­lega fundi árið 2017 og söfn­uðu fjár­stuðn­ingi frá með­limum sínum. Þá segir að tveir hafi farið til Sví­þjóðar til að funda með skoð­ana­bræðrum.

Evr­ópu­lög­reglan bendir á að ein­stak­lingar, stjórn­mála­flokkar, fjöl­miðlar og mann­rétt­inda­sam­tök sem and­mæla mál­flutn­ingnum kunni að verða fórn­ar­lömb hat­ursá­róð­urs og hvatn­ingar til ofbeld­is­verka. „Evr­ópu­lög­reglan segir að ógnin geti lýst sér í ofbeld­is­verkum ein­stak­linga og hópa og nefnir að í fram­tíð­inni kunni lík­ams­árásum, íkveikjum og alvar­legri verkn­uðum þ.m.t. morðum að fjölga,“ segir í skýrsl­unni.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Innflytjendamál

Ekkert samband á milli fjölda innflytjenda og glæpa
FréttirInnflytjendamál

Ekkert sam­band á milli fjölda inn­flytj­enda og glæpa

Fjöldi til­kynn­inga um ofbeld­is­brot á árunum eftir kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn er áþekkur fjöld­anum fyrir far­aldur, ef litið er til höfða­tölu. Ekki er sam­band á milli fjölda afbrota og inn­flytj­enda eða hæl­is­leit­enda, en það er mis­jafnt eftir löndum hvort inn­flytj­endur séu lík­legri eða ólík­legri til þess að fremja afbrot en inn­fæddir, að sögn afbrota­fræð­ings.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár