Unga fólkið sem yfirgaf Ísland sér ekki ástæðu til að flytja heim

Brott­flutn­ingur íslenskra rík­is­borg­ara úr landi kemur í bylgjum og hafa margir þeirra snúið aftur. Stundin ræddi við unga Íslend­inga sem hafa fæstir hug á end­ur­komu til Íslands.

Unga fólkið sem yfirgaf Ísland sér ekki ástæðu til að flytja heim
Útsýni yfir Lima­fjörð við bæinn Skive Katla, 22 ára nemi, stundar nám í smá­bænum Skive á Jótlandi. Hún var á leigu­mark­aði á Íslandi frá 16 ára aldri, en gafst loks upp og fór úr landi.

„Það er orðið of mikið sem þyrfti að breyt­ast til að ég myndi vilja flytja aftur til baka,“ segir Íslend­ingur sem búsettur er í Svíþjóð aðspurður hvort hann hefði áhuga á því að flytja aftur til Íslands.

Stundin ræddi við nokkra Íslend­inga á þrí­tugs­aldri sem búsettir eru á Norð­ur­lönd­unum um hvers vegna þeir ákváðu að flytja frá Íslandi, hvernig það hafi verið að aðlag­ast nýju sam­fé­lagi og hvort þeir hafi áform um að snúa ein­hvern tíma aftur. Ástæður brott­flutn­ing­anna voru marg­breyti­legar, til dæmis vegna námstæki­færa, ást­ar­innar eða ein­fald­lega áhuga á því að prófa eitt­hvað nýtt. Flestir við­mæl­enda hafa þó ekki hugsað sér að flytja aftur heim til Íslands og bar hús­næð­is­mark­að­inn iðu­lega á góma er spurt var hvort og þá hvað þyrfti að breyt­ast í íslensku sam­fé­lagi svo að það kæmi til greina.

Um 47 þúsund Íslendinga búsettir erlendis

Fjöldi Íslend­inga sem búa erlendis hefur auk­ist á und­an­förnum árum, en sam­kvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands eru 46.572 íslenskir rík­is­borg­arar með skráða búsetu erlendis. Þar af búa 62,8 pró­sent íslenskra rík­is­borg­ara erlendis á Norð­ur­lönd­unum, en flestir þeirra eru í Danmörku.

Samkvæmt heim­ildum Vinnu­mála­stofn­unar er fólk á aldr­inum 20–29 ára fjöl­menn­asti ald­urs­hópur Íslend­inga sem flytja úr landi, en síð­ustu 30 ár hefur hlut­fall þess hóps verið um 30 pró­sent allra brott­fluttra Íslend­inga.

Hlutfall aðfluttra Íslend­inga í sam­an­burði við brott­flutta hefur und­an­farin ár verið nei­kvætt, sem þýðir að á hverju ári flytja fleiri íslenskir rík­is­borg­arar frá land­inu heldur en til þess. Sú þróun hefur þó snú­ist við frá og með árinu 2017, sé á heild­ar­fjöld­ann litið, en hins vegar er hlut­fallið enn nei­kvætt hjá ald­urs­hópnum 20–29 ára þó svo að bilið fari minnk­andi.

Ókeypis læknisþjónusta mikill kostur 

Karen Guðna­dóttir er 26 ára Kefl­vík­ingur sem ákvað fyrir tveimur árum að flytja til smá­bæj­ar­ins Gråsten við landa­mæri Dan­merkur og Þýska­lands ásamt mann­inum sínum. „Við vorum búin að tala um það í nokkur ár að flyta til útlanda. Hvorugt okkar hafði búið ann­ars staðar heldur en í Keflavík svo við ákváðum að flytja til Dan­merkur því það er auð­velt fyrir Íslend­inga að byrja þar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár