Ásmundur Einar tilnefndi fráfarandi sveitarstjóra Skagafjarðar í verðlagsnefnd búvara

Félags­mála­ráð­herra skiptir út Þórólfi Matth­í­assyni og sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra skipar Friðrik Má Bald­urs­son sem for­mann verð­lags­nefnd­ar­innar. Afger­andi áhrif skag­firska efna­hags­svæð­is­ins.

Ásmundur Einar tilnefndi fráfarandi sveitarstjóra Skagafjarðar í verðlagsnefnd búvara

Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra hefur skipað nýja verð­lags­nefnd búvara og mun Friðrik Már Bald­urs­son, pró­fessor í hag­fræði við Háskól­ann í Reykja­vík, gegna for­mennsku. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu. 

Annar þeirra aðila sem Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, til­nefnir í nefnd­ina er Ásta Björg Pálma­dóttir, frá­far­andi sveit­ar­stjóri Skaga­fjarðar og fyrr­ver­andi starfs­maður Fisk Seafood, dótt­ur­fé­lags Kaup­fé­lags Skag­firð­inga. Ásmundur skip­aði hana einnig í stjórn Íbúða­lána­sjóðs fyrr á þessu ári. 

Samkvæmt búvöru­lögum skulu tveir full­trúar vera til­nefndir af Bænda­sam­tökum Íslands, tveir af Samtökum afurða­stöðva í mjólk­ur­fram­leiðslu og tveir af sam­tökum laun­þega auk þess sem ráð­herra land­bún­að­ar­mála skipar for­mann verð­lags­nefndar.

Bandalag starfs­manna ríkis og bæja og stjórn Alþýðu­sam­bands Íslands nýttu ekki rétt sinn til til­nefn­ingar og féll það því í hlut Ásmundar Einars sam­kvæmt lögum að  til­nefna tvo full­trúa. Hann valdi ann­ars vegar Ástu Björgu og hins vegar Ágúst Sigurð Ósk­ars­son sem starfað hefur  sem ráð­gjafi hjá VIRK starfsend­ur­hæf­ing­ar­sjóði. Áður sátu Þórólfur Matth­í­as­son hag­fræði­pró­fessor og Dóra Sif Tynes í nefnd­inni fyrir hönd vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins.

Full­trúar Bænda­sam­tak­anna eru Margrét Gísla­dóttir og Sindri Sig­ur­geirs­son en full­trúar Samtaka afurða­stöðva í mjólkur­iðn­aði eru Rögn­valdur Ólafsson og Jóhanna Hreins­dóttir. 

Áður var nefndin svo skipuð:

Kristrún M. Frosta­dótt­ir, skipuð af ráð­herra

Arn­ar Árna­son, til­nefnd­ur af Bænda­sam­tök­um Íslands

Sindri Sig­ur­geirs­son, til­nefnd­ur af Bænda­sam­tök­um Íslands

Rögn­vald­ur Ólafs­son, til­nefnd­ur af Sam­tök­um afurða­stöðva í mjólk­uriðn­aði sf.

Jó­hanna Hreins­dótt­ir, til­nefnd af Sam­tök­um afurða­stöðva í mjólk­uriðn­aði sf.

Þórólf­ur Geir Matth­ías­son, til­nefnd­ur af vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu

Dóra Sif Tynes, til­nefnd af vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu

Nú er hún svona:

Friðrik Már Bald­urs­son, for­maður, til­nefndur af sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra

Margrét Gísla­dóttir, til­nefnd af Bænda­sam­tökum Íslands

Sindri Sig­ur­geirs­son, til­nefndur af Bænda­sam­tökum Íslands

Rögn­valdur Ólafsson, til­nefndur af Samtökum afurða­stöðva í mjólkur­iðn­aði sf.

Jóhanna Hreins­dóttir, til­nefnd af Samtökum afurða­stöðva í mjólkur­iðn­aði sf.

Ágúst Sigurður Ósk­ars­son, til­nefndur af félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra

Ásta Björg Pálma­dóttir, til­nefnd af félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár