Félag sonar Karls í lykilstöðu sem nýr leigusali Læknavaktarinnar

Fjár­festir­inn Karl Wernersson er gjald­þrota en sonur hans er skráður eig­andi eigna sem hann átti áður. Félagið Faxar ehf. er eig­andi Lyfja og heilsu og 35 fast­eigna. Faxar ehf. hefur gert 10 ára leigu­samn­ing við Lækna­vakt­ina um hús­næði í Aust­ur­veri.

Félag sonar Karls í lykilstöðu sem nýr leigusali Læknavaktarinnar
Eign­irnar færðar tvisvar sinnum Lyfja­versl­un­inni Lyfjum og heilsu og tengdum eignum hefur tvisvar verið skotið undan yfir­vof­andi gjald­þroti í eig­enda­tíð Karls Wernerssonar. Móð­ur­fé­lag Lyfja og heilsu, Faxar ehf., hefur nú gert 10 ára leigu­samn­ing við Lækna­vakt­ina.

Fast­eigna­fé­lag í eigu sonar Karls Wernerssonar, Faxar ehf., er nýr leigu­sali Lækna­vakt­ar­innar eftir að fyr­ir­tækið flutti í nýtt hús­næði í Aust­ur­veri við Háa­leit­is­braut í byrjun júní. Í sömu bygg­ingu rekur Faxar ehf. apó­tek undir merkjum Lyfja og heilsu. Lækna­vaktin var áður til húsa á Smára­torgi í Kópavogi.

Eign­ar­hald sonar Karls á fast­eign­unum í Aust­ur­veri og á Lyfjum og heilsu er í gegnum eign­ar­halds­fé­lögin Faxa ehf. og Toska ehf. Sonur Karls eign­að­ist Faxa ehf., sem er móð­ur­fé­lag Lyfja og heilsu, eftir að Karl var dæmdur í fang­elsi og eftir að hann var dæmdur til greiða þrota­búi Milestone 10 millj­arða króna ásamt Stein­grími bróður sínum. Karl hefur nú verið úrskurð­aður gjald­þrota. Því er um að ræða fast­eign sem seld hefur verið, eða færð, undan kröfu­höfum Karls Wernerssonar.   

„Faxar höfðu frum­kvæði“ 

Frumkvæðið var Faxa ehf.

Gunnar Örn Jóhanns­son, fram­kvæmda­stjóri Lækna­vakt­ar­innar, segir í svörum sínum til Stund­ar­innar að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjármálahrunið

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár