Sigmundur spyr Steingrím hvort „hálfnakið fólk“ á vappi um þinghúsið auki virðingu Alþingis

Segir þing­húsið notað í aug­lýs­inga­skyni og veltir því fyrir sér hvort vænta megi til­slak­ana á reglum um klæða­burð Alþing­is­manna.

Sigmundur spyr Steingrím hvort „hálfnakið fólk“ á vappi um þinghúsið auki virðingu Alþingis

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, lagði fram fyr­ir­spurn til for­seta Alþingis í dag þar sem hann spyr „hver veitti leyfi fyrir því að hálf­nakið fólk nýtti Alþing­is­húsið í aug­lýs­inga­skyni og gengi þaðan á sama hátt og for­seti Íslands og þing­menn gera við þing­setn­ingu“.

Þar vísar hann til ljós­mynda­sýn­ing­ar­innar Demoncrazy á Lista­há­tíð Reykja­víkur þar sem sjá má ungar ber­brjósta konur standa ákveðnar og ein­beittar við styttur, ljós­myndir og mál­verk af valda­miklum körlum í opin­berum rýmum. 

Í umfjöllun um verkið á vef Lista­há­tíðar segir meðal ann­ars: „Þær horfa beint í mynda­vél­ina og ögra þeirri jakka­fata­klæddu, mið­aldra og karl­kyns ímynd valds­ins sem þær hafa alist upp við. Þær eru komnar til að vera. DEMONCRAZY er röð ljós­mynda í yfir­stærð sem sýndar eru á Aust­ur­velli.“

Sig­mundur leggur eft­ir­far­andi spurn­ingar fyrir Stein­grím J. Sig­fús­son þing­for­seta:

1. Hver veitti leyfi fyrir því að hálf­nakið fólk nýtti Alþing­is­húsið í aug­lýs­inga­skyni og gengi þaðan á sama hátt og for­seti Íslands og þing­menn gera við þing­setn­ingu? 

2. Telur for­seti Alþingis slíka notkun á þing­hús­inu og þing­hefðum til þess fallna að auka virð­ingu Alþingis? 

3. Var þetta leyfi tengt stuðn­ingi for­seta Alþingis við mál­stað þeirra sem leyfið hlutu? 

4. Mega aðrir hópar vænta þess að fá leyfi fyrir sams konar við­burðum óháð því hvort for­seti Alþingis er fylgj­andi mál­stað þeirra eða ekki? 

5. Er þetta leyfi til marks um að vænta megi frek­ari til­slak­ana á reglum um klæða­burð Alþing­is­manna?“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár