Bókin sem grófst undir flóðinu en rataði heim

Fyrir sjö­tíu árum tap­aði Erla Jóhanns­dóttir bók­inni sinni um Mikka mús eftir hörmu­legt slys. Bókin rataði á dög­unum aftur í hendur Erlu fyrir röð til­vilj­ana og gæsku. Búri bragða­refur sneri heim.

Bókin sem grófst undir flóðinu en rataði heim
Búri bragða­refur birt­ist á ný Erla Jóhanns­dóttir fékk á dög­unum í hend­urnar bók sem hún tap­aði fyrir sjö­tíu árum, eftir hörmu­legt slys sem sundraði fjöl­skyldu hennar. Röð til­vilj­ana og mann­gæsku réðu því að bókin rataði heim. Mynd: Gunnar Gunnarsson

Árið 1941 fékk lítil stúlka á Ströndum bók að gjöf frá föð­ur­systur sinni. Bókin, Búri bragða­refur, er um margt merki­leg en margir kann­ast við aðal sögu­hetj­una undir öðru nafni. Þarna var kom­inn Mikki mús í fyrsta skipti útgef­inn á íslensku. Ekki þarf að efast um að stúlkan hafi glaðst mjög yfir þess­ari fal­legu gjöf frænku sinnar, bækur voru kannski enn meiri djásn í augum barna á þessum tímum en nú er. Bókin var enda fal­leg, með myndum af músinni í ýmsum ævin­týrum og skemmti­legum texta. Vafa­lítið hefur fjög­urra ára stúlkan skoðað bók­ina oft, hún verið lesin fyrir hana og hún síðan lesið hana sjálf þegar hún var orðin læs. En svo tap­aði stúlkan bók­inni, og raunar svo mörgu öðru. Í einni svipan breytt­ist líf hennar til allrar fram­tíðar og hún hugs­aði ekki meira um bók­ina um Búra bragð­aref.

Hörmulegt og mannskætt slys olli viðskilnaðinum

„Ellefu ára stúlka er að heiman í fyrsta sinn. Hún býður eftir pabba sínum sem ætlar að sækja hana í far­skól­ann í Asparvík þar sem hún dvelur. Hún er að fara heim í jóla­frí og hlakkar mikið til að hitta mömmu sína og systur. Eftir fjóra daga ber­ast henni harma­fregnir. Snjóflóð hefur fallið á heim­ili hennar. Allir á bænum eru látnir nema fað­ir­inn sem er stórslas­aður eftir að hafa verið graf­inn í fönn í fjóra sól­ar­hringa.“

Þetta er upp­hafið að lífs­reynslu­sögu Erlu Jóhanns­dóttur sem rakin er í bók­inni Milli mjalta og messu. Bókin er byggð á við­tölum Önnu Kristine Magn­ús­dóttur í útvarps­þætt­inum Milli mjalta og messu sem voru á dag­skrá um ára­bil á Rás 2. Það kann að hljóma und­ar­lega að rekja þá sögu að Erla hafi fengið bók að gjöf í æsku í sam­hengi við það áfall sem hún og fjöl­skylda hennar urðu fyrir árið 1948, þegar snjó­flóð féll á bæinn Goðdal í Bjarn­ar­firði á Ströndum og sundraði fjöl­skyldu sem þar hafði búið við sam­heldni og ástúð. Það vill samt þannig til að merki­lega sögu er að segja af þess­ari bók, sem nú hefur ratað í hendur eig­anda síns, 70 árum eftir að þær skild­ust að.

Fyrsta útgáfan af Mikka MúsÁrið 1939 var gefin út í Reykja­vík í fyrsta skipti á Íslandi bók um Mikka Mús, sem þá hét Búri bragða­refur. Tveimur árum síðar fékk fjög­urra ára stúlka á Ströndum bók­ina að gjöf frá föð­ur­systur sinni.

Snjó­flóðið í Goðdal var hræði­legt slys. Þar lét­ust móðir Erlu, Svanborg Ingi­mund­ar­dóttir, og systur hennar tvær, Svan­hildur sjö ára og Ásdís tveggja ára. Einnig lét­ust í slys­inu afa­systir Erlu, hennar dóttir og dótt­ur­sonur. Faðir Erlu, Jóhann Krist­munds­son, komst einn lífs af úr flóð­inu eftir að hafa legið graf­inn undir snjó í fjóra sól­ar­hringa. Þar hlust­aði hann á konu sína og dætur kalla eftir hjálp en var bjarg­ar­laus, snjór­inn hélt honum í helj­ar­g­reipum og hægt og rólega dóu radd­irnar út, ein af annarri. Jóhann jafn­aði sig aldrei. Rúmum fjórum árum síðar svipti hann sig lífi, þá gat hann ekki lengur borið alla þá sorg sem lögð var á herðar honum.

Beið föður sem aldrei kom

Erla var sem fyrr segir ekki heima við þegar snjó­flóðið féll heldur í far­skóla í Asparvík. Þangað hafði hún farið og var það í fyrsta skipti sem hún fór að heiman. Á aðvent­unni beið hún þess að pabbi sinn sækti sig, en hann kom aldrei.

Í við­tal­inu sem Anna Kristine skrá­setti lýsti Erla því þegar hún fékk fregn­irnar af slys­inu. „Ég var úti að leika mér með hinum krökk­unum þegar Helgi, kenn­ari við skól­ann, kall­aði á mig inn á kenn­ara­stofu. Hann sagði við mig: „Erla mín, það varð slys heima hjá þér. Það fór­ust allir þar nema pabbi þinn og hann er hel­særður. Farðu nú út aftur að leika þér.““

Ekki þarf að fara mörgum orðum um hversu þung­bærir þessir atburðir allir hafa verið Erlu. Auk Erlu voru tveir bræður hennar einnig að heiman, þeir Haukur og Bergþór, sem báðir voru í skóla á Reykjum í Hrúta­firði. Erla dvaldi hjá föð­ur­systur sinni á Drangs­nesi til þrettán ára ald­urs en þá flutti hún suður til Reykja­víkur ásamt bræðrum sínum, til föður þeirra sem þar hafði búið þeim heim­ili. Þau nutu þó ekki sam­vista lengi því sem fyrr segir batt Jóhann, faðir Erlu, enda á líf sitt árið 1953.

Allar eignir seldar á uppboði

Erla lýsir því einnig í sam­tals­bók­inni hvernig hún fékk sím­tal nokkru eftir flóðið. Í sím­tal­inu var hún spurð hvort hún vildi eiga ein­hverja þá muni sem náð­ust úr flóð­inu, til minn­ingar um móður sína. Hlutina átti að öðrum kosti að selja á upp­boði, sem og var gert. Erla svar­aði því neit­andi, enda bara barn að aldri. „En nú óska ég þess að ég hefði átt eitt­hvað til minn­ingar um mömmu, jafn­vel þótt það hefði bara verið kápan sem pabbi var nýbú­inn að gefa henni, en sú kápa var seld á upp­boð­inu og er kannski til á ein­hverju heim­ili á Íslandi ennþá. Það væri betur og ef ein­hver veit af kápu sem var keypt á upp­boð­inu má sá aðili gjarnan hafa sam­band við mig.“

Erlu fylgdu því afar fáir hlutir úr æsku hennar út í lífið, sem hefur þrátt fyrir allt verið henni gjöf­ult. Hún kynnt­ist mann­inum sínum, Boga Ragn­ars­syni, sextán ára á balli í Breið­firð­inga­búð og þau felldu strax hugi saman. Saman eign­uð­ust þau sjö börn og eiga fjölda barna­barna og barna­barna­barna. Lengst af voru þau búsett á Djúpa­vogi, heimabæ Boga, en hafa síð­ari ár búið á Egils­stöðum.

Búri bragðarefur birtist á ný

Fyrir um mán­uði síðan var birt færsla á Facebook-síðu sem heitir Teikni­mynda­sögur. Þar aug­lýsti maður til sölu gamla bók, gefna út í Reykja­vík 1939. Um var að ræða fyrstu útgáfu af bók sem nefnd­ist Búri bragða­refur en glöggir gátu séð að flestum Íslend­ingum er tamara að hugsa um sögu­hetj­una sem Mikka mús. Hófust boð í bók­ina og end­aði það með því að maður að nafni Brjánn Jónsson hreppti hnossið. Og héldu nú flestir teikni­mynda­sögunördar að ekki væri meiri tíð­inda að vænta af Búra bragð­aref.

„Mér þykir þetta svo óskap­lega fal­legt og vel gert af honum“ 

Áletrun vakti athygliÞegar mynd af bók­inni var birt á net­inu ráku glöggir menn augun í að hún var merkt Erlu og Hólmavík. Þar með fór bolt­inn að rúlla.

En selj­andi bók­ar­innar hafði birt mynd af tit­il­síð­unni og þar mátti lesa eft­ir­far­andi áletrun: „Hólmavík. Til Erlu. Frá Rósu. 3. júní 1941.“ Þetta vakti athygli glöggra Stranda­manna sem deildu mynd­inni inn á síðu Stranda­manna og vöktu athygli á að þarna væri komin bók sem merkt væri Hólmavík. Þar rak Guð­mundur nokkur Björg­vins­son augun í bók­ina og þekkti þar nafn ömmu sinnar, Rósu. Og þar með fór bolt­inn að rúlla.

Guð­mundur hafði þá sam­band við frænku sína, Hafdísi Erlu Boga­dóttur, dóttur Erlu. Hafdís brást þá við og setti inn færslu á síð­una þar sem bókin hafði verið boðin upp og lýsti því hvernig það hefði komið til að móðir hennar tap­aði bók­inni sinni. Hafdís end­aði færslu sína svo: „Mamma á því ósköp fátt frá því að hún var barn. Mamma er í dag 81 árs. Mér þætti mjög vænt um ef þið vilduð vera svo góðir að leyfa mér að eign­ast þessa bók til að gefa mömmu. Hún er ekki bara bók um Mikka mús. Hún er minn­ing um Rósu frænku og það að hafa verið áhyggju­laust barn í faðmi fjall­anna í dalnum hennar, fjall­anna sem þó voru svo ógur­leg að flóð úr þeim varð til þess að hún missti þá sem henni voru kær­astir.“

Ekki annað hægt en að hrífast af sögunni

Stundin ræddi við Hafdísi sem upp­lýsti að Brjánn, sem eign­ast hafði bók­ina, hafi orðið snort­inn af sögu Erlu, móður hennar. „Ég sendi honum Brjáni skila­boð en við náðum ekki saman alveg strax. Við töl­uðum síðan saman í síma og Brjánn sagði mér að auð­vitað fengi ég bók­ina, hún ætti heima hjá henni mömmu minni. Ég spurði hann þá: „Hvað viltu fá fyrir bók­ina?“ Hann svar­aði: „Ekkert, hún er gjöf frá mér til mömmu þinnar.“ Mér þykir þetta svo óskap­lega fal­legt og vel gert af honum,“ segir Hafdís.

Ekki annað hægt en að hríf­astBrjánn Jónsson, sem hér sést með Hafdísi Erlu, segir að auð­vitað eigi bókin um Búra hvergi ann­ars staðar heima en hjá Erlu. Hann við­ur­kennir samt að hann sjái pínu­lítið eftir henni.

Brjánn segir í sam­tali við Stundina að hann hafi safnað öllum Andrésar Andar-blöð­unum sem komið hafa út á íslensku og þess vegna hafi bókin um Búra sann­ar­lega vakið athygli hans, sem fyrsta útgáfa af Mikka mús hér á landi. Hann hafi raunar verið á hött­unum eftir ein­taki af henni um nokk­urt skeið. „Það er hins vegar ekk­ert annað hægt en að hríf­ast af þess­ari sögu og auð­vitað á bókin hvergi ann­ars staðar heima en hjá gömlu kon­unni. Ég lít svo á að bókin hafi ratað heim. En ég játa það alveg að ég sé pínu­lítið eftir henni.“

Hafdís telur allar líkur á að bókin um Búra hafi verið meðal þeirra muna fjöl­skyld­unnar í Goðdal sem boðnir voru upp á upp­boði eftir flóðið. Í það minnsta sé Erla, móðir hennar, viss um að bók­ina hafði hún ekki með sér þegar hún var í far­skól­anum í Asparvík. Bókin hafi því graf­ist í flóð­inu og síðan kom­ist í hendur ann­arra. Sá sem bauð bók­ina til sölu á net­inu hafði eign­ast hana úr dán­ar­búi og því fátt vitað um hvað á daga bók­ar­innar hafi drifið und­an­farin sjö­tíu ár. „Ég man ekki eftir því að hún mamma eigi margt úr sinni æsku en mörgum árum seinna eign­að­ist hún könnu að gjöf frá bróður hennar ömmu. Það var kannan sem afi hafði haldið á þegar snjó­flóðið féll. Kannan bjarg­aði afa, hann var með hana í fang­inu og bræddi í henni snjó til drykkjar meðan hann lá þarna undir snjó­farg­inu.“

„Auðvitað á bókin hvergi ann­ars staðar heima en hjá gömlu kon­unni“

Kannan sem bjarg­aði Erla heldur hér á könnu föður síns, einum fárra hluta sem hún á úr æsku. Kannan bjarg­aði lífi föður hennar. Í könn­unni bræddi hann vatn til drykkjar þegar hann lá fastur í fjóra daga undir snjó­flóð­inu sem féll á Goðdal.

Lífið leitar jafnvægis

Bókina fékk Hafdís svo í hend­urnar frá Brjáni á dög­unum og gerði sér ferð austur á Egils­staði til að færa móður sinni hana. Hún segir að móðir sín hafi orðið glöð og þótt nota­legt að fá bók­ina í hend­urnar en við­ur­kenndi að hún myndi kannski ekki mikið eftir bók­inni úr æsku sinni. „Ég held að það hafi ansi mikið horfið af minn­ingum mömmu frá þessum árum. Þetta var auð­vitað þung­bært og mikið áfall. En mamma kvart­aði aldrei, hún er töffari og hefur alltaf verið. Þess vegna þykir mér svo vænt um að geta glatt hana með þessu.“

Hafdís segir að saga bók­ar­innar um Búra bragð­aref sýni hvað til­vilj­anir séu merki­legar og kannski líka hvernig lífið hefur til­hneig­ingu til að leita í jafn­vægi. „Bókin hefði svo auð­veld­lega getað farið fram­hjá okkur fjöl­skyld­unni. Til­vilj­anir eru svo merki­legar. Mér finnst dásam­legt hvernig þetta rað­ast upp, að bókin skuli koma þarna í leit­irnar, að Brjánn skuli sýna svona mikla gæsku og að hún mamma skuli, eftir sjö­tíu ár, fá í hend­urnar eitt­hvað sem minnir hana á þann tíma þegar lífið var gott og fag­urt á æsku­slóð­unum í Goðdal. Það er eitt­hvað afskap­lega nota­legt við þetta. Nú er bókin komin heim og ég ætla að tryggja að hún verði til á hverju heim­ili afkom­enda mömmu með því að láta fjöl­falda hana. Það verður jóla­gjöfin í ár.“

Lífið leitar jafn­vægisErlu þótti nota­legt að fá bók­ina aftur í hendur eftir öll þessi ár. Hér er hún ásamt Hafdísi Erlu dóttur sinni og Boga eig­in­manni sínum.

 

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár