Þakkir foreldra til ljósmæðra

Fjöl­margir for­eldrar hafa sagt frá reynslu sinni af ljós­mæðrum í Facebook-hópnum „Mæður & feður standa með ljós­mæðrum!“. Eft­ir­taldar sögur er að finna þar og eru birtar með leyfi við­kom­andi.

Þakkir foreldra til ljósmæðra

„Án þeirra hefði kannski annar tvíburinn ekki lifað þetta af“

Ofboðs­lega þakk­látLísbet Reykja­lín er þeim ljós­mæðrum sem aðstoð­uðu hana við að koma tví­burunum í heim­inn ofboðs­lega þakk­lát.

„Ég er ofboðs­lega þakk­lát þeim ljós­mæðrum sem aðstoð­uðu mig við að koma tví­burunum okkar hjóna í heim­inn, ég á þeim allt að þakka. Fagleg vinnu­brögð alla leið! Þær létu mér líða vel þrátt fyrir mikla óvissu um hvað ég væri að fara út í og höfðu þannig við­mót að ég gat lagt allt mitt traust á þær. Þetta var ekki auð­velt því það þurfti stöðugt að vera að meta lífs­mörk beggja strák­anna á sama tíma og þær voru að reyna að koma öðrum þeirra út, en þeim tókst líka, á sama tíma, að hugsa um mína líðan, láta mér líða vel og finna öryggi. Þetta varð til þess að þegar það þurfti að kalla rauðan keis­ara og hlaupa með mig eins hratt og fætur tog­uðu niður á skurð­deild sjúkra­húss­ins á Akureyri, þá gat ég lokað aug­unum og enn og aftur lagt allt mitt traust á fag­fólkið, að lífi stráks­ins sem var í hættu yrði bjargað. Það tókst og við fjöl­skyldan gengum út af sjúkra­hús­inu viku seinna með full­komna tví­bura, búin að fá áfalla­hjálp og fag­lega ráð­gjöf varð­andi það hvernig fæð­ingin end­aði og hvers vegna, búin að fá aðstoð og ráð­gjöf varð­andi brjósta­gjöf, sem gekk erf­ið­lega í byrjun, en þökk sé þeim þá náði ég að hafa báða á brjósti í ár og búin að ná mér að mestu lík­am­lega eftir átökin.

Var í lífs­hættuAnnar sonur Lísbetar Reykja­lín var um stund í lífs­hættu í fæð­ing­unni, en hún lagði allt sitt traust á fag­fólkið og var lífi hans bjargað.

Ég á bara ekki orð til að lýsa þakk­læti mínu, án þeirra hefði kannski annar tví­bur­inn ekki lifað þetta af.“

- Lísbet Reykja­lín

„Studdu mig andlega þar til kom að fæðingu“

Jóhanna Villimey Jóns­dóttirNokkrum vikum fyrir fæð­ingu kom í ljós að dóttir Jóhönnu var með sjald­gæfan sjúk­dóm.

„Þremur vikum sirka fyrir settan dag hjá mér kemur í ljós að barnið er með sjúk­dóm sem kall­ast diap­hragm hernia. Öll líf­færi og þarmar voru uppi í brjóst­holi og hafði aðeins annað lungað náð að þroskast. Við tók mjög erf­iður tími þar sem vitað var að barnið þyrfti strax að fara í aðgerð og yrði það tví­sýnt. Voru það ljós­mæð­urnar sem studdu mig and­lega þar til kom að fæð­ingu. Þann 2. nóv­em­ber 2003 eign­ast ég frum­burð minn, dásam­lega stúlku sem stóð sig svo eins og hetja og plumm­aði sig.“

- Jóhanna Villimey Jóns­dóttir

Tárast við tilhugsunina

„Ég á tvær dætur fæddar 2014 og 2016. Í bæði skiptin fór ég í gegnum fjórar ljós­mæðra­vaktir og end­aði í bráða­keis­ara. Það var lífs­reynsla út af fyrir sig en allan tím­ann var ég róleg, enda vissi ég að ég væri í öruggum höndum. Þessar ljós­mæður sem önn­uð­ust mig voru hver annarri betri.

Í öruggum höndumÁstríður Við­ars­dóttir seg­ist hafa verið róleg allan tím­ann í fæð­ing­unum tveimur, því hún vissi að hún væri í öruggum höndum.

Að öðrum ólöstum, stóðu þær Stella I. Stein­þórs­dóttir og Ingi­björg Ýr Ósk­ars­dóttir upp úr. 

Stella sat yfir mér þegar ég átti eldri dóttur mína. Ég tár­ast þegar ég hugsa til þess hvernig hún lagði sig alla fram og veitti mér stuðn­ing og klapp­aði mér á kinn­ina og hvatti mig áfram þegar ég var alveg við það að bug­ast. 

Endaði tvisvar í bráða­keis­araDætur Ástríðar Við­ars­dóttur fædd­ust árin 2014 og 2016, en í bæði skiptin fór hún í gegnum fjórar ljós­mæðra­vaktir og end­aði í bráða­keis­ara.

Ingi­björg Ýr var svo með mér þegar ég átti yngri dóttur mína, en hún kom á vakt­ina eins og ferskur and­blær. Hún, eins og Stella, vildi allt fyrir mig gera og ég man sér­stak­lega eftir einu atviki þegar hún spyr mig hvort ég vilji ekki fá smá fóta­nudd. Ég átti ekki til orð, þetta kom mér svo á óvart. Hún sem hafði meira en nóg að gera setti rólega tón­list á og nudd­aði á mér fæt­urna. Ingi­björg ann­að­ist mig svo í heima­þjón­ust­unni og ég sann­ar­lega hlakk­aði til að fá hana í hvert sinn.“ 

- Ástríður Við­ars­dóttir

„Þær björguðu lífi mínu“

Blæddi nær útAnna Silvía seg­ist eiga ljós­mæðrum líf sitt að launa.

„Stuttu eftir að full­komna litla stúlkan mín kom í heim­inn byrj­aði að blæða ALLsvaka­lega. Her­bergið fyllt­ist af ljós­mæðrum á örskots­stundu sem héldu mér niðri á meðan þær björg­uðu lífi mínu. Hnefi inn í legið og hendi á móti til að örva legið til að drag­ast saman. Verkja­lyfja­laust er þetta ÓGEÐSLEGA vont. 100× verra en hríðir! 

Á meðan ég fjar­aði út af blóð­leysi og þreytu, kvaddi fjöl­skyldu mína í hug­anum, fékk ég skyndi­lega kinn­hest frá einni ljós­móður. Hún sagði mér að minn tími væri ekki kom­inn og að þær væru að ná mér til baka. Við að heyra það efldist ég aftur upp og hlust­aði á hana tala mig til baka. Ég kom til baka!

Ég á líf mitt ykkur að þakka.“

- Anna Silvía

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár