Má ekki heita Pírati

Álf­heiður Eymars­dóttir má ekki taka heitið Pírati upp sem milli­nafn. Manna­nafna­nefnd bendir á að orðið er ekki dregið af íslenskum orð­stofni og hefur nefni­falls­end­ingu. Því full­yrði það ekki skil­yrðum laga um manna­nöfn.

Má ekki heita Pírati

Álf­heiður Eymars­dóttir stjórn­mála­fræð­ingur má ekki heita Pírati. Þetta er nið­ur­staða manna­nafna­nefndar sem nýlega hafn­aði beiðni hennar um að fá að taka Pírati upp sem milli­nafn. „Samkvæmt 2. mgr. 6. gr. laga um manna­nöfn skal milli­nafn dregið af íslenskum orð­stofnum en má þó ekki hafa nefni­falls­end­ingu,“ segir í úrskurði manna­nafna­nefnar. „Milli­nafnið Pírati er ekki dregið af íslenskum orð­stofni og hefur nefni­falls­end­ingu og full­nægir þess vegna ekki skil­yrðum laga um manna­nöfn.“ 

Álf­heiður er ósátt með nið­ur­stöð­una. „Ég sótti fyrst um að fá að heita Pírati að eft­ir­nafni, en því var hafnað á þeim for­sendum að Pírati væri ekki við­ur­kennt ætt­ar­nafn á Íslandi. Í kjöl­farið sendi ég inn beiðni um að fá að taka þetta upp sem milli­nafn en því var líka hafnað,“ segir hún. „Orðið Pírati fall­beyg­ist auð­vitað þótt þetta sé ekki alís­lenskt orð. Það getur verið með og án greinis, í ein­tölu eða fleir­tölu og lag­ast full­kom­lega að mál­inu.“ Álf­heiður seg­ist hafa átt von á því að manna­nafna­nefnd hafn­aði beiðn­inni á þeim for­sendum að um væri að ræða karl­manns­nafn. „Ég var til­búin með svar við því og ætl­aði að benda á að ég upp­lifi mig að hluta sem karl­mann og eðli­legt væri að taka til­lit til slíkra sjón­ar­miða. En það kom ekki til þess.“ 

Hún seg­ist ekki hafa ákveðið hver næstu skref verða. Samkvæmt lögum um manna­nöfn verður úrskurðum manna­nafna­nefndar ekki skotið til æðra stjórn­valds. Þó eru for­dæmi fyrir því að dóm­stólar við­ur­kenni rétt fólks til að heita til­teknum nöfnum. Í máli Hér­aðs­dóms Reykja­víkur þar sem fjallað var um kven­manns­nafnið Blæ árið 2013 komst dóm­stóll­inn að þeirri nið­ur­stöðu að „réttur stefn­anda til að bera nafnið Blær [væri] rík­ari en hags­munir sam­fé­lags­ins af því að hafna kröf­unni.“  

Manna­nafna­nefnd hefur kveðið upp 10 úrskurði nú í mars. Nefndin hafn­aði beiðni um milli­nafnið Lóni en sam­þykkti Lóna sem karl­kyns eig­in­nafn. Þá voru eig­innöfnin Tóti, Ýlfa, Bambus, Nancy, Líus, Alparós og Levý sam­þykkt en milli­nafn­inu Ström­fjörð hafnað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Mannanöfn

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
5
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár