Bjórglasið á Íslandi dýrast í heimi

Samkvæmt vefnum Numbeo, þar sem verð­lag í löndum heims­ins er borið saman, er bjór­glas á veit­inga­stað dýr­ast á Íslandi. Opinber gjöld og sterk króna eru meðal orsaka hás áfeng­is­verðs.

Hálfur lítri af krana­bjór á veit­inga­stað er dýrastur á Íslandi af öllum löndum heims. Þetta kemur fram á vefnum Numbeo, þar sem verð­lag og ýmis önnur töl­fræði er borin saman milli landa.

Samkvæmt síð­unni kostar hálfur lítri af inn­lendum krana­bjór 1.100 kr. á íslenskum veit­inga­stöðum. Næst á eftir Íslandi koma Katar og Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­dæmin, en bæði þess­ara ríkja fram­fylgja harðri áfeng­is­lög­gjöf, enda áfengi bannað sam­kvæmt lögum Kór­ans­ins, helgi­rits múslima. Því næst koma Norð­ur­löndin, Sviss, Singapúr og Ísrael. Ódýrastur er bjór­inn í Venes­ú­ela, Úkraínu og Íran, en það síð­ast­nefnda skýtur skökku við, enda áfengi með öllu ólög­legt þar í landi.

Áfeng­is­gjöld á Íslandi eru með þeim hæstu í Evrópu, en hlutur rík­is­ins er tölu­verður vegna áfeng­is­gjalds, virð­is­auka­skatts, skila­gjalds og fram­legðar ÁTVR. Áfeng­is­gjöld hafa hækkað tölu­vert und­an­farin ár og leggj­ast þau hlut­falls­lega þyngra á sterkt áfengi en bjór og létt­vín, þar sem miðað er við áfeng­is­pró­sentu.

Sterk króna …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár