Ritstjórn Stundarinnar verðlaunuð fyrir umfjöllun um uppreist æru

Stundin fékk þrenn verð­laun sem veitt voru við hátíð­lega athöfn í Hörpu í dag. Rit­stjórn Stund­ar­innar fékk blaða­manna­verð­laun árs­ins fyrir umfjöllun um upp­reist æru og ljós­mynd­ari Stund­ar­innar var verð­laun­aður fyrir mynda­röð árs­ins af sam­fé­lagi heim­il­is­lausra í Laug­ar­dalnum og portrait mynd árs­ins.

Ritstjórn Stundarinnar verðlaunuð fyrir umfjöllun um uppreist æru

Rit­stjórn Stund­ar­innar fékk Blaða­manna­verð­laun árs­ins 2017 fyrir ít­ar­lega umfjöllun um upp­reist æru kyn­ferð­is­brota­manna, áhrif þess á fórn­ar­lömb mann­anna og tregðu stjórn­valda til upp­lýs­inga­gjaf­ar. Umfjöll­unin var að mati dóm­nefndar vönduð, yfir­grips­mikil og heild­stæð.

Við sama tæki­færi fékk Heiða Helga­dóttir ljós­mynd­ari Stund­ar­innar tvenn verð­laun, ann­ars vegar fyrir mynda­röð árs­ins um sam­fé­lag heim­il­is­lausra í Laug­ar­dal, sem hægt er að sjá hér: Reykja­vík 104,5: Íslenska flótta­fólkið í Laug­ar­dalnum.  Fékk hún einnig verð­laun fyrir portrait árs­ins, fyrir mynd af Sylviane Lecoultre Péturs­son. 

Portrait árs­ins Í umsögn dóm­nefndar segir: Ljósmynd­ar­inn dregur fram líkams­tjáningu og svip­brigði Sylviane í ljóðrænni birtu sem varpar daufum skugga á vegg­inn, táknrænum skugga fyrir það sem ekki lengur er. Eig­in­maður hennar barð­ist við krabba­mein og valdi að fara til Sviss til að enda líf sitt.

Um leið og verð­launin voru veitt opn­aði árleg sýn­ing íslenskra blaða­ljós­mynd­ara í Esju, aust­ur­hluta Hörpu. Veitt voru verð­laun í 7 flokkum auk bestu myndar árs­ins. Mynd árs­ins 2017 tók Stefán Karlsson, ljós­mynd­ari Frétta­blaðs­ins og er það mynd afNínu Rún Bergs­dóttur sem situr í stól húð­flúr­ara sem er að flúra „I am the storm“ á öxl Nínu. Hún er þar ásamt konum sem allar fengu sér sama húð­flúrið og höfðu allar orðið fyrir kyn­ferð­is­legu ofbeldi af hálfu sama manns. Myndin er á margan hátt tákn­ræn fyrir árið 2017 því reynsla þeirra kom af stað hreyf­ingu sem fékk heitið „Höfum hátt“.

Mynd árs­insGlódís Tara, Nína Rún Bergsdóttir, Anna Katrín Snorradóttir og Halla Ólöf Jónsdóttir, fórnarlömb Róberts Downeys, fá sér allar sams konar húðflúr. Í umsögn dóm­nefndar sagði: Ekki er annað að sjá en að hér sé eitt­hvað alvana­legt að ger­ast. Húðflúr sem ristir ekki djúpt. Vinkonur saman. Það er þó víðsfjarri öllum sanni og myndin er á margan hátt táknræn fyrir árið 2017. Konurnar, Anna Katrín Snorradóttir, Glódís Tara, Halla Ólöf Jónsdóttir og Nína Rún Bergsdóttir, urðu allar fyrir kyn­ferð­is­legri mis­notkun af hendi sama manns. Reynsla þeirra kom af stað hreyf­ingu sem fékk heitið Höfum hátt sem ásamt öðru varð til þess að ríkis­stjórn lands­ins féll. Ljósmynd­ar­inn hefur fangað við­kvæma stund. Fjórar mann­eskjur að tengj­ast eilífum böndum, sem fórnarlömb og sem aðgerða­sinnar. Nína Rún Bergsdóttir og stoð­irnar hennar þrjár allar að fá sér sama húðflúrið: „I am the storm“.

Sem fyrr segir voru verð­laun Blaða­manna­fé­lags Íslands einnig veitt í Hörpu í dag. Alls voru veitt verð­laun í fjórum flokkum og fóru tvenn verð­laun til RÚV, fyrir við­tal árs­ins og rann­sókn­ar­blaða­mennsku árs­ins.

Verð­launa­hafar og rök­stuðn­ingur dóm­nefndar var eft­ir­far­andi:

Viðtal ársins

Viktoría Her­manns­dóttir, RÚV,

fyrir við­tal við Árna Jón Árnason í þætt­inum Á ég bróður á Íslandi?

Við­tals­þáttur Viktoríu er unn­inn af fag­mennsku og góðri til­finn­ingu fyrir efni­viðnum. Í við­tal­inu eru  hlust­endur teknir með í spenn­andi ferð sem hefst með leit Banda­ríkja­manns­ins David Balsam að bróður sínum hér á landi. Bróð­ir­inn finnst og heitir Árni Jón Árnason.

Í áhrifa­miklu við­tali nær Viktoría að draga fram hæg­láta per­sónu Árna, sem ekki  hefur kraf­ist þess að taka mikið pláss í líf­inu. Sambandi Árna við móður sína og systk­ini hér á á landi er vel lýst, sem og áhrifum þess að alast upp sem ástands­barn. Um þann hluta her­náms­ins á Íslandi hefur ekki verið mikið fjallað og er við­talið  frá­bær við­bót við hina vönd­uðu þátta­röð, Ástands­börn, sem Viktoría gerði einnig á síð­asta ári.  

Umfjöllun ársins

Sunna Ósk Loga­dóttir, Morg­un­blað­inu,

fyrir umfjöllun árs­ins með grein­ar­flokknum Mátt­ur­inn eða dýrðin

Sunna varp­aði skýru ljósi á þá stöðu sem uppi er á raf­orku­mark­aði hér á landi. Í greina­flokknum Mátt­ur­inn eða dýrðin sést hvernig sífellt fleiri tog­ast á um nátt­úru­auð­lind­irnar sem eru af skornum skammti. Bent var á áhrif breyttra neyslu­venja lands­manna með raf­bíla­væð­ingu og að eft­ir­spurn fyr­ir­tækja eftir raf­orku væri nú meiri en hægt er að afgreiða.

Um leið og þróun þess­arar umræðu kom vel fram var bent á hvernig núver­andi staða kallar á aðgerðir til að auka orku­fram­boð eða draga úr notk­un­inni. Sunna ræddi við tugi manna um stöð­una: íbúa, nátt­úru­vernd­ar­sinna, virkj­ana­að­ila, for­svars­menn stofn­ana og aðra sem hafa hags­muni og skoð­anir á mál­inu. Málefnið er mik­il­vægt, fram­setn­ingin skýr og grein­ar­góð, byggð á heim­ildum sem sóttar voru víða. 

Rannsóknarblaðamanneska ársins

Alma Ómars­dóttir, RÚV,

fyrir rann­sókn­ar­blaða­mennsku í umfjöllun um upp­reist æru

Umfjöllun Ölmu um upp­reist æru var heild­stæð, þar sem allar hliðar máls­ins voru kann­aðar. Rætt var við full­trúa aðila sem sótt hafði um upp­reist æru, konur sem brotið hafði verið gegn og aðstand­endur þeirra og ferli umsóknar útskýrt.

Í sam­skiptum sínum við fram­kvæmda­valdið, sem ber ábyrgð á ferl­inu, kom Alma hins vegar að lok­uðum dyrum, þar sem neitað var að veita upp­lýs­ingar um hverjir hefðu fengið sam­þykktar umsóknir og hverjir veitt hefðu með­mæli með slíkum umsóknum. Ölmu tókst, meðal ann­ars með kæru til Úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál, að tryggja að öll gögn kæmust upp á yfir­borðið og dró þannig fram nýjar upp­lýs­ingar sem skiptu veru­legu máli fyrir almenn­ing.

Blaðamannaverðlaun ársins

fær rit­stjórn Stund­ar­innar fyrir umfjöllun um upp­reist æru

Umfjöllun Stund­ar­innar um upp­reist æru var vönduð, yfir­grips­mikil og heild­stæð. Samhliða ítar­legum frétta­skýr­ingum birt­ust í upp­hafi umfjöll­un­ar­innar áhrifa­rík við­töl Áslaugar Karenar Jóhanns­dóttur við fórn­ar­lömb Róberts Downey sem sýndu mikla næmni fyrir umfjöll­un­ar­efn­inu.

Stundin lagði af mörkum mikla frum­kvæð­is­vinnu í þessu máli og greindi fyrst miðla frá því að annar kyn­ferð­is­brota­maður, Hjalti Sigurjón Hauksson, hefði fengið upp­reist æru sam­tímis Róbert og að til þess hefði Hjalti hlotið með­mæli frá föður þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra. Sú upp­ljóstrun Stund­ar­innar átti eftir að draga veru­legan dilk á eftir sér sem end­aði með stjórn­ar­slitum og kosn­ingum.

Fyrirvari við umfjöllun: Stundin fjallar hér um atburði þar sem fjölmiðillinn sjálfur er viðfangsefni.

 

 
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár