Myrkraverk á Kjarvalsstöðum

Í myrkr­inu lifir dulúð, kynn­gi­mögnun, fantasíur og súr­r­eal hug­ar­heimur. Sýningin Myrkra­verk er með dul­ar­fullu sniði og hleypir ímynd­un­ar­afl­inu af stað.

Myrkraverk á Kjarvalsstöðum
Á vett­vangi myrkra­verka Sýnig­ar­stjór­inn Markús Þór Andr­és­son og Sigga Björg Sig­urð­ar­dóttir lista­kona. Mynd: Heiða Helgadóttir

 Sýningin Myrkra­verk stendur yfir á Kjar­vals­stöðum. Þar eru sýnd verk lista­manna sem fengið hafa inn­blástur úr þjóð­sögum og ævin­týrum eða þá að þeir hafa skapað sinn eigin hul­iðs­heim sem gestir safns­ins geta kynnst næstu mán­uði. „Maður getur sagt að öll verkin á sýn­ing­unni fjalli um mann­lega til­vist hvort sem það er yfir­fært yfir á þjóð­sögur eða fantasíur en þá er verið að búa til ein­hvers konar form utan um hið mann­lega, reyna að ein­angra til­finn­ingar og aðstæður og skoða þær í ein­hverju nýju ljósi,“ segir Markús Þór Andr­és­son sýn­ing­ar­stjóri.

„Þetta eru í grunn­inn verk og lista­menn sem ég hef haft auga­stað á í gegnum tíð­ina og und­an­farin miss­eri, fólk sem maður hefur verið for­vit­inn um og viljað gjarnan sýna. En ég hef kannski ekki fundið tæki­færi til þess fyrr en þessi hug­mynd kom upp og skeyta þeim þá saman í sam­sýn­ingu undir þessum for­merkjum,“ segir Markús Þór Andr­és­son, sem …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár