Yfirgefnir jólakettlingar björguðust

Kattholt tók inn móð­ur­laust kett­linga­got sem fannst í pappa­kassa rétt fyrir jól. Rekstr­ar­stjóri segir að kett­lingar séu sjaldnar skildir eftir úti en fyrir nokkrum árum.

Yfirgefnir jólakettlingar björguðust
Kett­ling­arnir Voru skildir eftir á víða­vangi. Mynd: Kattholt

Sex kett­lingar, sem fund­ust í pappa­kassa á víða­vangi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu 13. des­em­ber, eru komnir með tíma­bundið aðsetur á Katt­holti. Halldóra Björk Ragn­ars­dóttir, for­maður Katta­vina­fé­lags Íslands, sem rekur Kattholt, segir að kett­ling­arnir séu aðeins þriggja til fjög­urra vikna gamlir og þurfi því ennþá pela­gjafir til að nær­ast, vaxa og dafna.

Kett­ling­arnir eru komnir með nöfnin Giljagaur, Stúfur, Stekkj­ar­staur, Skyrgámur, Gátta­þefur og Askja, en þeir eru fimm fressar og ein læða. „Þeir verða hér í góðu yfir­læti,“ segir Halldóra. „Þeir eru ennþá mjög ungir og verða ekki til­búnir á ný heim­ili fyrr en í jan­úar eða febr­úar. Þeir verða því hér í okkar umsjón yfir hátíð­irnar og allar spreng­ing­arnar þar til allt róast niður. Þeir eru mjög góðir og mann­vænir, en þurfa á svo mik­illi ást að halda, og góðum mat.“

Kettir sjaldnar skildir eftir úti

Halldóra segir að þau séu ekki viss hversu lengi kett­ling­arnir hafi verið aleinir í pappa­kassa á víða­vangi. Líklegra sé að það hafi aðeins verið í nokkra tíma en daga, þar sem þeir voru ekki illa haldnir þegar þeir fund­ust. „Oft ræður til­viljun því hvort fólk rambi á ketti þegar þeir eru skildir svona eftir, en katta­fólk á það til að skipta sér frekar af og koma til okkar, eins og gerð­ist með þessa kett­linga.“

Komnir í hita og skjólSex kett­lingar voru skildir eftir í pappa­kassa, en spjara sig núna ágæt­lega á Katt­holti.

Halldóra segir að á þeim sex árum sem hún er búin að vera í stjórn Katta­vina­fé­lags­ins hafi því farið fækk­andi að fólk skilji kett­linga eftir úti, en að það ger­ist ennþá. „Sem betur fer er þetta eitt­hvað sem ger­ist ekki einu sinni í mán­uði. Við fáum kannski núna þrjú til fjögur til­vik á ári, en það var meira um þetta 2012–14. Sem betur fer er fólk eitt­hvað farið að hugsa sinn gang og gefur ketti sjaldnar í gjöf eða tekur þá á heim­ili sem er ekki und­ir­búið fyrir þá.“

Kett­ling­arnir verða til sýnis í Katt­holti á nýju ári í leit að nýju heim­ili og, von­andi, heim­il­is­vænni ævin­týrum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár