GAMMA semur við eigið verktakafyrirtæki um byggingu 105 íbúða

Sjóður GAMMA á 62 pró­sent í nýju verk­taka­fyr­ir­tæki sem byggir hús í Mos­fellsbæ fyrir fast­eigna­fé­lag GAMMA. Fram­kvæmda­stjóri fast­eigna­fé­lags­ins neitar að gefa upp hvernig samn­ingar tók­ust á milli þess­ara félaga GAMMA og hvort verkið hafi verið boðið út.

GAMMA semur við eigið verktakafyrirtæki um byggingu 105 íbúða
Stærstir á Íslandi Gísli Hauksson, stofn­andi og stjórn­ar­for­maður GAMMA, segir að fyr­ir­tækið sé stærst á Íslandi í bygg­ingu íbúð­ar­hús­næðis. GAMMA hefur nú stofnað sitt eigið verk­taka­fyr­ir­tæki sem fær verk­efni frá GAMMA.

Fast­eigna­fé­lag í stýr­ingu sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­is­ins GAMMA hefur samið við verk­taka­fyr­ir­tæki, sem er að stóru leyti í eigu sjóðs sem GAMMA stýrir, um að byggja 105 íbúðir í Bjark­ar­holti í Mos­fellsbæ. GAMMA kemur því að stýr­ingu beggja þeirra fyr­ir­tækja sem eiga í þessum við­skiptum og er óger­legt að sjá hverjir fjár­fest­arnir eru á bak við fyr­ir­tækin sem um ræðir þar sem engar hlut­hafa­upp­lýs­ingar eru til um eign­ar­hald þeirra sjóða sem GAMMA stýrir. 

Fast­eigna­fé­lagið, Upphaf fast­eigna­fé­lag slhf., hefur því hags­muni af því að ná sem hag­kvæmustum og ódýrustum samn­ingum við verk­taka­fyr­ir­tækið, Fram­kvæmda­fé­lagið Arn­ar­hvoll ehf., en verk­taka­fyr­ir­tækið hefur eðli­lega hags­muni af því að fá sem mest greitt fyrir vinnu sína. GAMMA er því báðum megin við borðið í við­skipt­unum. Tveir af þremur stjórn­ar­mönnum Arn­ar­hvols ehf. eru starfs­menn GAMMA, þeir Alex­ander Jenssen Hjálm­ars­son og Arnar Hauksson, en sá fyrr­nefndi er stjórn­ar­for­maður. 

Sjóð­ur­inn á bak við fast­eigna­fé­lagið Upphaf heitir GAMMA: Novus á meðan sjóð­ur­inn …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár