Nýstirni jólabókaflóðsins: Úr þorpinu á mölina

Jónas Reynir Gunn­ars­son frá Fellabæ fyrir austan er sprott­inn fram sem full­skap­aður höf­undur. Ásgeir Hannes Ing­ólfs­son skrifar um Milli­lend­ingu, Stór olíu­skip og Leið­ar­vísi um þorp.

Nýstirni jólabókaflóðsins: Úr þorpinu á mölina
Jónas Reynir Gunn­ars­son Skáldið sem gaf út þrjár bækur á einu hausti og vann til bók­mennta­verð­launa. Mynd: Heiða Helgadóttir

Snemma í haust kom út Leið­ar­vísir um þorp, lítil ljóða­bók frá Partus. Hún var eftir Jónas Reyni Gunn­ars­son og flestir spáðu eflaust svip­uðum ferli og og hjá flestum öðrum ungskáldum, hann myndi þurfa að gerj­ast aðeins áður en við myndum fá að lesa meiri og stærri verk. En viti menn, fyrsta skáldsagan kom strax í kjöl­farið, sem og bók­mennta­verð­laun Tómasar Guð­munds­sonar fyrir enn aðra jóla­bók.

Nýstirni þessa jóla­bóka­flóðs virt­ist komið fram – og vissu­lega hafa bæði skáldsagan Milli­lend­ing og verð­launa­ljóða­bókin Stór olíu­skip hlotið heil­mikla athygli. En kannski gleym­ist litla frumraunin aðeins á meðan, sem er mikil synd, því þótt hinar bæk­urnar séu góðar þá er Leið­ar­vísir um þorp lang­best, enda ein besta ljóða­bók sem ég hef lesið lengi.

„Leik­tækin eru til á ljós­myndum. Þau standa vörð um æsku þína.“

Þessar línur lýsa því ágæt­lega hvernig þorp þetta er, þetta er bernsku­þorpið. Sem alltaf þarf að yfir­gefa. Ljóð­mæl­andi rennur saman við þorpið, und­ir­skrift hans er alls staðar.

„Ég hef stytt mér leið í gegnum garð nágrann­ans svo oft að mold­ar­slóði sker lóð­ina í tvennt. Á ensku eru svona stígar kall­aðir des­ire paths. Ég er hættur að skrifa undir mik­il­væg skjöl með nafni og teikna í stað­inn rák­ina í garð nágranna míns. Hún lýsir því betur hver ég er.“

Þarna sakn­aði ég að vísu aðeins að í kjöl­far des­ire paths yrði til­raun til íslensk­unnar, enda ótal fal­legir mögu­leikar – þrá­slóð eða þrá­stígur til dæmis – en þessi kafli er eitt dæmi af mörgum hvernig sál­grein­ing íbúa þorps­ins er sam­tvinnuð stað­hátta­lýs­ingum. Þetta er sál­grein­ing á þorpi og það er ekki í mót­sögn við tit­il­inn á bók­inni, leið­ar­vísir­inn er sál­grein­ingin. Þorpið, það ert þú. Bernsku­stöðv­arnar sem mörk­uðu þig.

Bernskan eru hól­arnir sem þú rennir þér niður, ung­lings­árin sjoppan þar sem þú beiðst. Þeim fylgir brýn­ing: 

Áður en ung­lings­ár­unum líkur
skaltu setj­ast aðeins á ryksugu­kass­ann
fyrir utan sjopp­una 

Leið­ar­vísir um þorp

Þorpið er einmitt ung­lings­árin fyrir ansi mörgum. Árin fyrir háskól­ann, jafn­vel fyrir mennta­skól­ann, árin fyrir full­orð­ins­árin. Því er lýst hvernig ung­ling­arnir reyna að stækka og  taka sér pláss svo þeir hverfi ekki inn í þorpið, sem kall­ast á við önnur kveðju­orð:

„Áður en þú ferð skaltu horfa á brekk­urnar. Þær voru stærri hluti af lífi þínu þegar þú varst yngri. Þú renndir þér á vet­urna og hjólaðir á sumrin. En eftir því sem þú eld­ist minnka brekk­urnar. Þær eru sveiflur í línu­riti yfir líf þitt sem verða sífellt ósýni­legri þegar tíma­ás­inn leng­ist.“

Þetta þorp þarf að yfir­gefa eins og öll þorp. Þetta er heldur ekki bara þorp, þetta eru bernsku­stöðv­arnar – þetta gæti allt eins verið hverfi í borg, það þyrfti í sjálfu sér ekki endi­lega miklu að hnika til til þess að breyta þessu í Breið­holtið eða Vest­ur­bæ­inn. Nema það verður alltaf öðru­vísi að yfir­gefa þorpið.

Bókinni er skipt í þrjá kafla, Göngu­leiðir, Dægradvöl og Útgöngu­leiðir. Þú þarft að læra að rata, þú þarft að finna þér eitt­hvað fyrir stafni – og svo það mik­il­væg­asta: þú þarft að fara.

Að höggva ljósastaura

Í Stóru olíu­skip­unum er ljóð­mæl­andi far­inn – og kom­inn. Til borg­ar­innar, ein­hverrar óljósrar borgar sem gæti verið Reykja­vík og gæti verið útlönd og gæti verið í fjar­lægri fram­tíð sem er örlítið martrað­ar­kennd, ekki svona martröð sem hræðir mann heldur draumur sem skilur eftir ónota­kennd í mag­anum. Þetta er sótt­hita­kenndur heimur og ljóð­mæl­and­inn er enn að reyna að rata. Ólíkt hund­inum Mola:

Stóru olíu­skipin

„Þegar ég var lít­ill hljóp hund­ur­inn Moli oft laus um þorpið. Hann var úr sveit. Ég veit ekki hvað hann hljóp langt til að kom­ast í þorpið en mig skortir sjálfs­bjarg­ar­við­leitni til að ferð­ast á nýjan stað og ráfa um eins og Moli gerði áður en hann drapst.“

Þetta er einn besti texti bók­ar­innar – en kjarnar líka vanda hennar. Hér er ljóð­skáldið ekki alveg búinn að læra að rata jafn vel og í þorp­inu, hann er athug­ull og með glögg gests­augu en hann á enn eftir að sál­greina allt þetta mal­bik og marka sína þrá­slóða í það.

Þegar maður stækkar er nauð­syn­legt að fara út í hinn stóra heim – en það getur tekið tíma að stækka inn í þennan stóra heim, að læra að meta allar fjar­lægðir upp á nýtt, skilja borgir þar sem hvert hverfi inni­heldur jafn­vel mörg þorp. Í fimmta ljóði bók­ar­innar (þau eru nafn­laus en núm­eruð frá 1–30) segir:

„Margir leggja á sig löng ferða­lög til að rekast á eitt­hvað fal­legt. En á leið­inni falla þeir í gegnum ísinn á stöðu­vatn­inu. Og þegar þeir leita að vök­inni upp­götva þeir nýja teg­und af þreytu.“

Ljóð­mæl­and­inn er enn að vinna bug á þreyt­unni – og bregst svo við eins og sannur sveita­maður í ein­hverjum bestu línum bók­ar­innar, línum sem hefðu alveg passað inn í Leið­ar­vísi um þorp líka: 

„Ég fer um borg­ina eins og skóg­ar­höggs­maður
og felli ljósastaura.
Ef við hættum ekki að lýsa upp myrkrið
verðum við alltaf hrædd.“

Og jafn­vel þarna er ein­hver von – hún er þó ekki í hinu kunn­ug­lega eins og í þorp­inu, heldur í hinu ókunn­uga, hinum ókunn­ugu. Enda eru kannski allir hérna ókunn­ugir, svona fyrst um sinn:

„Eitthvað í augna­ráði stelpunnar sem þjón­aði mér til borðs minnti mig á að ég er ekki dauður. Og annað sem ég hafði gleymt: Í líf­inu er meira satt en ósatt.“

Dagur í lífi stúlku

En nóg um ljóðin, mað­ur­inn var víst að gefa út skáld­sögu líka. Hún ger­ist líka í borg, ekki óræðri borg þó heldur fyrst og fremst í Reykja­vík. Aftan á káp­unni fylgir Hall­grímur Helgason henni úr hlaði og það er við­eig­andi, þetta er jú 101 Reykja­vík 21 ári síðar. Það er komin ný kyn­slóð á bar­inn.

Bókin hefst þó á Kefla­vík­ur­flug­velli, þar sem hin 22 ára María bíður. Bókin er öll sögð í fyrstu per­sónu og svona kynn­umst við Maríu fyrst:

Milli­lend­ing

„Áður en ég fór frá Brighton hringdi ég í Gauja og laug að honum að ég væri að smygla e-pillum til lands­ins. Ég þarf alltaf að gera hann spenntan fyrir að sækja mig, ann­ars kemur hann ekki. Ekki að hann sé slæmur vinur. Það er bara erfitt að treysta á hann, því hann hefur enga ábyrgð­ar­til­finn­ingu.“

Eins og sést er María oft drep­fynd­inn sögu­maður – en hún er líka nán­ast alveg laus við sjálfs­vit­und. Hún er vissu­lega afskap­lega með­vituð um ákveðna galla – og barna­legan klæða­burð sinn, en hún hefur samt enga til­finn­ingu fyrir hvar hún stendur í líf­inu – og áttar sig til dæmis illa á að lýs­ingin á Gauja á alveg jafn vel við hana sjálfa.

Þetta er sneið­mynd af sól­ar­hring í lífi, sól­ar­hring í slabbblautri Reykja­vík, í fylgd með þess­ari umkomu­lausu stelpu. Það er smá Hlynur Björn og Holden Caulfield í henni, vissu­lega, en þeir voru þjak­aðir af til­gangs­leysi heims­ins, hún er þjak­aðri af sínu eigin til­gangs­leysi. 

Hún er týnd í líf­inu, hún er þessi mann­eskja sem getur ekki valið – hún kann bara að bregð­ast við – og kann það raunar varla. Hún skilur ekk­ert í sjálfri sér að hafa valið fötin sem hún er í, hún er hin óaf­ger­andi mann­eskja holdi klædd.

Hún reynir vissu­lega að fá til­breyt­ingu og til­gang í lífið, en það gengur illa. Eina skiptið sem við sjáum almenni­lega glitta í sál­ina er þegar hún lýsir fyrsta mdma tripp­inu – en mögu­lega segir lýs­ingin á til­raun númer tvö meira: „ [...] en í stað­inn var ég bara and­vaka að hlusta á tón­list í stof­unni.“ Til­finn­ingar dofna, dópið hættir að virka. Það að flytja til útlanda virkar ekki heldur: „En svo liðu vik­urnar og mán­uð­irnir og þetta nýja var ekki lengur jafn nýtt.“

Að mestu er sál­ar­lífið í takt við þessa slabb­kenndu Reykja­vík – en jafn­vel borgin er á köflum glað­ari en hún, heim­ur­inn verður bjartur en það birtir samt ekk­ert yfir líf­inu. „Að vera í vondu skapi í góðu veðri er eins og að ríf­ast við ein­hvern sem hlustar ekki á mann.“

Hún bjó í Brighton með fyrr­ver­andi kærasta og rifjar upp hvernig sam­bandið fjar­aði út. „Þetta var svona tíma­bil þegar maður vaknar og bíður bara eftir að dag­ur­inn verði búinn.“ Þessi bók er í raun um svona dag, jafn­vel svona líf. Mögulega lendir María ein­hvers staðar á end­anum – en fyrst þarf hún að kom­ast á flug, kom­ast úr þessum bið­sal lífs­ins sem hún er föst í.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár