Kvika lánaði Framsókn 100 milljónir gegn veðum í yfirveðsettri fasteign

Reynt var að halda því leyndu í fyrra að Kvika banki væri lán­veit­andi Fram­sókn­ar­flokks­ins. 50 millj­óna lán var veitt til flokks­ins í aðdrag­anda kosn­ing­anna 2016. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn fékk aðrar 50 millj­ónir frá Kviku í sumar en þá var tekið fram hver lán­veit­and­inn væri.

Kvika lánaði Framsókn 100 milljónir gegn veðum í yfirveðsettri fasteign
Tvö 50 millj­óna lán Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur fengið tvö 50 millj­óna lán frá Kviku síð­ast­liðið rúmt ár. Leynd var yfir hver lán­veit­and­inn væri í fyrra. Kvika er hins vegar til­greind í þing­lýstum gögnum sem lán­veit­andi flokks­ins í ár og skrifar Sigurður Ingi Jóhanns­son, nýskip­aður sam­göngu­ráð­herra, undir lán­veit­ing­una. Mynd: Kristinn Magnússon

Bankinn Kvika hf. lán­aði Fram­sókn­ar­flokknum 50 millj­ónir króna í júlí á þessu ári gegn 5. veð­rétti í höf­uð­stöðvum flokks­ins á Hverf­is­götu í Reykja­vík. Lánið bæt­ist við annað 50 millj­óna króna lán frá Kviku sem Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn fékk í fyrra­sumar. Hingað til hefur ekki legið ljóst fyrir hver lán­aði flokknum þá upp­hæð í fyrra þar sem ein­ungis kom fram nafn „hand­hafa“ á trygg­ing­ar­bréf­inu sem þing­lýst var á fast­eign Fram­sókn­ar­flokks­ins út af því láni í fyrra.  

Nafn Kviku kemur hins vegar fyrir sem lán­veit­andi á nýja skulda­bréf­inu út af lán­inu nú í sumar og er lánið frá bank­anum til Fram­sókn­ar­flokks­ins frá því í fyrra á 4. veð­rétti á höf­uð­stöðvum flokks­ins. Eigandi húss­ins er félagið Skúla­garður ehf. sem er að 87 pró­sentum í eigu Fram­sókn­ar­flokks­ins. Húsið er tæp­lega 466 fer­metrar að stærð og er fast­eigna­mat þess rúm­lega 100 millj­ónir króna. 

Þáver­andi for­stjóri Kviku, Sigurður Atli Jónsson, er mágur Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, sem …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjármál stjórnmálaflokka

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár