Margt er furðulegt og dapurlegt í sambandi við ríkisstjórnarmyndun VG.
En fátt þó eins og það að svo virðist sem Sigríður Andersen verði dómsmálaráðherra í ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur, rétt eins og hún hefur verið í ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar.
Sigríður Andersen hefur haldið hlífiskildi yfir óhæfri stjórn Útlendingastofnunar sem hvað eftir annað hefur gert sig bera að hörku, miskunnarleysi og skilningsleysi á lífi og hlutskipti okkar minnstu systra og bræðra - flóttamanna.
Sigríður Andersen dró stórkostlega úr trausti á bæði dómskerfinu og stjórnsýslunni með afskiptum sínum af Landsrétti.
Um málatilbúnað Sigríðar Andersen í hinu hryggilega „uppreistar-máli“ er vonandi þarflaust að ræða. Þar þvældist hún í lengstu lög fyrir eðlilegri upplýsingagjöf, en sá þó ástæðu til að upplýsa einn mann sérstaklega: Bjarna Benediktsson.
Nú ætla Katrín og Svandís að sitja brosmildar við ríkisstjórnarborðið með Sigríði.
Athugasemdir