Miðflokkurinn, Flokkur fólksins og Samfylkingin sigurvegarar kosninganna

Nýr flokkur Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, Mið­flokk­ur­inn, fær sjö þing­menn. Flokkur fólks­ins fær fjóra og Sam­fylk­ingin bætir við sig fjórum þing­mönnum.

Miðflokkurinn, Flokkur fólksins og Samfylkingin sigurvegarar kosninganna
Formenn flokk­anna í sjón­varps­sal RÚV í nótt. Mynd: Pressphotos

Mið­flokk­ur­inn, Flokkur fólks­ins og Sam­fylk­ingin eru sig­ur­veg­arar Alþing­is­kosn­ing­anna 2017, en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, Píratar, Viðreisn og Björt fram­tíð helstu tap­ar­arnir. 

Mið­flokk­ur­inn, klofn­ings­fram­boð Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, end­aði með 10,9 pró­sent greiddra atkvæða og sjö þing­menn, Flokkur fólks­ins fékk 6,9 pró­sent og fjóra þing­menn og Sam­fylk­ingin fékk 12,1 pró­sent atkvæða, bættu við sig fjórum þing­mönnum og eru því alls með sjö. 

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er enn stærsti flokk­ur­inn á land­inu, hlaut 25,5 pró­sent greiddra atkvæða, en missti alls fimm þing­menn frá fyrra kjör­tíma­bili. Píratar misstu fjóra þing­menn, Viðreisn þrjá og Björt fram­tíð hlaut ein­ungis 1,2 pró­sent greiddra atkvæða og komust því ekki á þing. 

Vinstri græn end­uðu með 16,9 pró­sent fylgi, sem er nokkuð minna en kann­anir sýndu, en bættu við sig einum þing­manni. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, sem hafði verið að mæl­ast lít­ill í skoð­ana­könn­unum eftir að flokk­ur­inn klofn­aði með fram­boði Sig­mundar Davíðs, end­aði í 10,7 pró­sentum og hélt sínum þing­manna­fjölda. 

 

Niðurstaða Alþingiskosninga 2017

Sjálf­stæð­is­flokkur 25,5 pró­sent - 16 þing­menn

Vinstri græn 16,9 pró­sent - 11 þing­menn

Sam­fylk­ingin 12,1 pró­sent - 7 þing­menn

Mið­flokk­ur­inn 10,9 pró­sent - 7 þing­menn

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn 10,7 pró­sent - 8 þing­menn

Píratar 9,2 pró­sent - 6 þing­menn

Flokkur fólks­ins 6,9 pró­sent - 4 þing­menn

Viðreisn 6,7 pró­sent - 4 þing­menn

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2017

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár