Gríðarleg óánægja með ráðherra ríkisstjórnarinnar

Alls eru 63,5 pró­sent kjós­enda óánægðir með frammi­stöðu Bjarna Bene­dikts­sonar for­sæt­is­ráð­herra en aðeins 19,1 pró­sent eru ánægðir sam­kvæmt nýrri könnun Maskínu. Fæstir eru ánægðir með frammi­stöðu Bene­dikts Jóhann­es­sonar fjár­mála­ráð­herra.

Gríðarleg óánægja með ráðherra ríkisstjórnarinnar
Óánægja með frammi­stöðu ráð­herra Samkvæmt könnun Maskínu eru flestir Íslend­ingar óánægðir með frammi­stöðu allra ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar. Mynd: Stjórnarráðið

Fleiri Íslend­ingar eru óánægðir en ánægðir með frammi­stöðu allra ráð­herra rík­is­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar. Þrír ráð­herrar skera sig úr hvað óánægju varðar, en á milli 63 pró­sent og 66 pró­sent eru óánægð með störf Bene­dikts Jóhann­es­sonar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, Sigríðar Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra og Bjarna Bene­dikts­sonar for­sæt­is­ráð­herra.

Þetta er á meðal nið­ur­staðna nýlegrar könn­unar Maskínu og var birt í dag. 

Flestir eru ánægðir með störf Guðlaugs Þórs Þórð­ars­sonar utan­rík­is­ráð­herra, eða 27,3 pró­sent, og þá eru 25,9 pró­sent ánægðir með frammi­stöðu Bjartar Ólafs­dóttur umhverfis- og auð­linda­ráð­herra og 25,6 pró­sent með störf Þor­steins Víglunds­sonar félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra. 

Almennt hefur ánægja með frammi­stöðu ráð­herr­anna lækkað frá því í maí síð­ast­liðnum, en stendur nán­ast í stað hjá Óttari, Jóni, Guðlaugi Þór og Þor­steini.

Konur eru óánægð­ari með frammi­stöðu Bjarna Bene­dikts­sonar en karlar, en eru ánægð­ari með Þórdísi Kolbrúnu Reyk­fjörð Gylfa­dóttur. Þá eru Reyk­vík­ingar ánægð­ari en aðrir með frammi­stöðu Bjartar Ólafs­dóttur en óánægð­ari en aðrir með Sigríði Á. Andersen. Íbúar nágranna­sveit­ar­fé­laga Reykja­víkur eru ánægð­ari en aðrir með tvo ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins, þá Guðlaug Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra og Kristján Þór Júl­í­us­son mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. Íbúar ann­arra sveit­ar­fé­laga eru óánægð­ari en aðrir með tvo ráð­herra Við­reisnar, þau Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur og Þorstein Víglunds­son.

Þá eru þeir sem segj­ast myndu kjósa Pírata óánægð­ari en aðrir með störf Bjarna Bene­dikts­sonar og Sigríðar Á. Andersen. Þeir sem myndu kjósa Mið­flokk­inn eru hins vegar óánægð­ari en aðrir með störf Bene­dikts Jóhann­es­sonar, Bjartar Ólafs­dóttur og Óttars Proppé. Þegar litið er á ánægju með frammi­stöðu ráð­herra meðal fylgj­enda þeirra eigin flokka virð­ast Óttar Proppé heil­brigð­is­ráð­herra og Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir ferða­mála, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra hafa minnstan stuðn­ing þeirra sem myndu kjósa flokka þeirra. Mest ánægja er hins vegar með störf Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra og Bjarna Bene­dikts­sonar for­sæt­is­ráð­herra meðal þeirra sem segj­ast myndu kjósa flokka þeirra.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2017

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
6
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár