Ótrúlega sterkt matarminni

Arna Kristín Ein­ars­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Sin­fón­íu­hljóm­sveitar Íslands, seg­ist hafa ótrú­lega sterkt mat­ar­minni og að hún sjái enn eftir að hafa ekki fengið sér fiski­súpu í St. Tropez þegar hún var 11 ára því hún lyktaði svo vel.

Matarminni
Mat­ar­minni Arna Kristín getur rifjað upp heilu ferða­lögin, dag fyrir dag, út frá því sem hún borð­aði. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Ég hef alltaf getað borðað allan mat og var aldrei mat­vönd sem krakki,“ segir Arna Kristín Ein­ars­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Sin­fón­íu­hljóm­sveitar Íslands. „Ég myndi samt ekki segja að ég væri sér­stakur „gúr­met“-kokkur og er ekki mjög upp­tekin af mat. Ég borða meira til að lifa frekar en að lifa til að borða, ef svo má segja. Þrátt fyrir það hef ég ótrú­lega sterkt mat­ar­minni. Ég get rifjað upp heilu ferða­lögin dag fyrir dag bara út frá því hvað ég borð­aði. Þannig er mér mjög minn­is­stætt ferða­lag sem ég fór í með mömmu og pabba til Frakk­lands þegar ég var 11 ára. Þar varð ég fyrir stór­kost­legum mat­ar­upp­lif­unum sem bragð­lauk­arnir muna enn, eins og þegar ég smakk­aði kirsu­ber fyrst og gat ekki hætt að borða þau. Í þeirri ferð pant­aði ég yfir­leitt það sama og mamma og pabbi fengu sér nema í eitt skipti. Það var í St. Tropez. Þá fengu þau sér …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár