Sjálfstæðismenn tefji uppbyggingu íbúðarhúsa í Reykjavík

Jóna Sólveig Elín­ar­dóttir, þing­maður og vara­for­maður Við­reisnar, segir Sjálf­stæð­is­menn hafa tafið upp­bygg­ingu íbúð­ar­húsa í Reykja­vík því þeir hafa ekki viljað tala við Dag B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóra Sam­fylk­ing­ar­innar. Píratar segja frá­leitt að andúð Sjálf­stæð­is­manna á sitj­andi borg­ar­stjórn skuli leiða til þess að fjöldi borg­ar­búa fær ekki þak yfir höf­uðið.

Sjálfstæðismenn tefji uppbyggingu íbúðarhúsa í Reykjavík
Jóna Sólveig Elín­ar­dóttir Vara­for­maður Við­reisnar. Mynd: Pressphotos

Jóna Sólveig Elín­ar­dóttir, vara­for­maður Við­reisnar, segir Sjálf­stæð­is­menn hafa tafið upp­bygg­ingu íbúð­ar­húsa í Reykja­vík því þeir hafa ekki viljað tala við Dag B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóra Sam­fylk­ing­ar­innar. Þetta kom fram í við­tali við Jónu Sólveigu í Kosn­inga­spjalli Vísis í gær.

Full­trúar Pírata í borg­ar­stjórn, aðal­menn í ráðum og nefndum borg­ar­innar, hafa sent frá sér yfir­lýs­ingu vegna þess­ara orða. Þeir segja málið gríð­ar­lega alvar­legt. 

„Um er að ræða lóðir í eigu rík­is­ins á svæðum þar sem Reykja­vík­ur­borg gerir ráð fyrir upp­bygg­ingu hús­næðis sam­kvæmt aðal­skipu­lagi. Forsenda þess að hægt sé að byrja að byggja þar íbúðir er því að samn­ingar náist milli ríkis og borgar um að borgin fái þær í hendur. Í núver­andi ástandi, þar sem er mikil eft­ir­spurn eftir hús­næði, er mjög mik­il­vægt að allir hafi hraðar hendur og vinni stöðugt og lausn­a­miðað eftir þeim ferlum sem skipu­lag byggðar og upp­bygg­ing hús­næðis útheimtir. Þarna var ekki einu sinni virkt sam­tal í gangi og að sjálf­sögðu ger­ist ekk­ert á meðan svo er ekki,“ segir í yfir­lýs­ing­unni. 

„Það er frá­leitt að andúð Sjálf­stæð­is­manna á sitj­andi borg­ar­stjórn skuli leiða til þess að fjöldi borg­ar­búa fær ekki þak yfir höf­uðið.“

Hins vegar kemur einnig fram að rík­i­s­lóð­irnar hafi ekki reynst reynst bráð­nauð­syn­legur liður í upp­bygg­ing­unni enda sé hús­næð­is­upp­bygg­ing í Reykja­vík komin á gott skrið án þeirra. En í því ástandi sem við búum við sé allt sem sé til þess fallið að tefja fram­tíð­ar­upp­bygg­ingu og tefla henni í tví­sýnu að óþörfu hið versta mál.

„Að full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins dragi vís­vit­andi lapp­irnar af því að þeim líkar per­sónu­lega ekki við þá sem ráða í Reykja­vík er hrein­asta sví­virða. Það er því miður ein­fald­lega hár­rétt að það fór ekk­ert að hreyfast í þessum málum fyrr en ráð­herrar Við­reisnar, Benedikt Jóhann­es­son og Þor­steinn Víglunds­son, komu að borð­inu og keyrðu samn­inga við borg­ina í gegn. Það er frá­leitt að andúð Sjálf­stæð­is­manna á sitj­andi borg­ar­stjórn skuli leiða til þess að fjöldi borg­ar­búa fær ekki þak yfir höf­uðið. Það dylst engum sem fylgist með stjórn­málum að þetta er ekki ein­ungis til­fallandi, heldur nán­ast flokkslína í allt of mörgum mála­flokkum. Að sam­starfi um hag og heill íbúa í Reykja­vík sé kastað á haug­ana vegna flokks­hags­muna er ólíð­andi.“

Full­trúar Pírata segja enn­fremur þakk­ar­vert að Jóna Sólveig hafi haft hug­rekki til að segja frá þessum sam­skiptum, enda geti oft verið vanda­samt fyrir stjórn­mála­menn að vekja athygli á slíkri fram­komu vegna trún­aðar í sam­starfi milli flokka. Þetta mál sé hins vegar þess eðlis að ekki sé rétt­læt­an­legt að þegja um það. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
6
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár