„Sannleikurinn er brothættur“

Björn Hlynur Har­alds­son leikur aðal­hlut­verkið í einu fræg­asta leik­verki Henrik Ibsens, Óvini fólks­ins, á stóra sviði Þjóð­leik­húss­ins. „Ég upp­lifi algjöra kúvend­ingu í gegnum þennan mann,“ segir Björn Hlynur um per­són­una sem hann leikur.

„Sannleikurinn er brothættur“
Björn Hlynur Har­alds­son „Margir sem hafa séð sýn­ing­una halda að við séum búin að krukka mikið í þessu og bæta við vegna þess að sumt teng­ist mikið því sem er í umræð­unni í dag og því sem er efst á baugi í dag.“ Mynd: Heiða Helgadóttir

„Allir leik­arar eiga sam­eig­in­legt að vilja fyrst og fremst leika góð hlut­verk, áhuga­verðar per­sónur,“ segir Björn Hlynur Har­alds­son. Hann nefnir góð hlut­verk þegar mann­eskja er leikin sem gengur í gegnum hreinsun eða kaþarsis eins og það er líka kallað – þegar kúvend­ing og umbreyt­ing verður í lífi við­kom­andi. 

„Þetta er eitt af þeim hlut­verkum leik­bók­mennt­anna. Svo er auð­vitað hægt að fara illa með góð hlut­verk og kannski er líka hægt að fara vel með vond hlut­verk. Þetta er hins vegar grunn­ur­inn að því að ná vel utan um þá per­sónu sem maður leikur. Tómas gengur í gegnum þessa hreinsun í verk­inu og það gefur góðan efni­við í vinn­una.“

Harður á sínum skoðunum

Tómas Stokkman læknir er aðal­per­sóna leik­rits­ins og á heima­síðu Þjóð­leik­húss­ins er leik­rit­inu lýst svona: 

„Það eru upp­gangs­tímar í bænum, ný og glæsi­leg heilsu­böð laða að fjölda ferða­manna og efna­hagur bæj­ar­búa blómstrar sem aldrei fyrr. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár