Faðir forsætisráðherra var meðmælandi Hjalta – ráðuneytið hélt því leyndu

Ráðuneytið leyndi Stundina upplýsingum um að faðir forsætis­ráðherra hefði veitt manni, sem nauðgaði stjúpdóttur sinni í tólf ár, umsögn svo hann gæti fengið uppreist æru.

Benedikt Sveinsson, faðir Bjarna Benedikts­sonar forsætis­ráðherra, veitti Hjalta Sigurjóni Haukssyni meðmæli vegna umsóknar hans um uppreist æru í fyrra. 

Hjalti var dæmdur árið 2004 fyrir að hafa brotið gegn stjúpdóttur sinni nær daglega í tólf ár. Stundin greindi frá því þann 25. ágúst að hann hefði fengið uppreist æru og verið sæmdur óflekkuðu mannorði af forseta Íslands að tillögu innan­ríkis­ráðherra. 

Stundin hefur árangurs­laust óskað eftir upplýsingum frá dómsmála­ráðuneytinu um umsagnar­aðila Hjalta frá því í byrjun mánaðar en fékk loksins stað­festingu, eftir öðrum leiðum, í dag. 

Spurt var hvort aðili sem tengdist forsætis­ráðherra fjöl­skyldu­böndum hefði veitt Hjalta meðmæli. Þá var spurt: a) Ef já, vissi innan­ráðherra af fjölskyldu­tengslunum þegar ákveðið var að upplýsa ekki um nöfn umsagnar­aðila þeirra sem fengið hafa uppreist æru og að svara ekki fyrir­spurnum þolenda um málin? b) Upplýsti forsætis­ráðherra aðra ráðherra um tengsl sín við umsagnar­aðila eins af umsækjendum um uppreist æru þegar málin voru afgreidd úr ríkis­stjórn á haust­mánuðum 2016?

Dómsmála­ráðuneytið svaraði aldrei fyrir­spurn Stundarinnar þótt blaðið hafi ítrekað spurningarnar margsinnis, bæði hringt og farið í ráðuneytið til að tala við upplýsinga­fulltrúa án árangurs.

Heimsóttur í fangelsið

Samkvæmt heimildum blaðsins hafa Benedikt Sveinsson og Hjalti þekkst í mörg ár. Stundin ætlaði að greina frá meðmælum Benedikts í þarsíðustu viku, en hætti við að flytja fréttina eftir að Hjalti neitaði því að Benedikt hefði veitt sér meðmæli. Hjalti vildi ekki tjá sig þegar eftir því var leitað í dag.

Hann hefur þó viðurkennt að þeir Benedikt séu vinir til margra ára og sagst þakklátur Benedikt fyrir að hafa staðið með sér í gegnum súrt og sætt. Benedikt hafi til að mynda heimsótt hann í fangelsið þegar hann afplánaði dóm sinn.

Hjalti mun einnig hafa leitað til Bjarna Benedikts­sonar, sem þá var lögmaður, eftir að hann var kærður fyrir kynferðis­brot um aldamótin. Nokkrum árum síðar hringdi Hjalti í Bjarna og óskaði honum góðs gengis í stjórn­málum, en Hjalti er stuðnings­maður Sjálfstæðis­flokksins til margra ára. 

Gekk lengra í leyndinni en lög heimila 

Eins og Stundin fjallaði um fyrr í vikunni gekk Sigríður Á. Andersen, dómsmála­ráðherra og flokks­systir Bjarna Benedikts­sonar, lengra í upplýsinga­leynd um mál manna sem fengið hafa uppreist æru heldur en upplýsingalög heimila.

Úrskurðar­nefnd um upplýsingamál komst að þeirri niður­stöðu á þriðjudag að dómsmála­ráðuneytinu hefði ekki verið heimilt að synja fjöl­miðlum og aðstand­endum brotaþola um aðgang að upplýsingum um hverjir hafa veitt meðmæli vegna umsóknar um uppreist æru. 

Uppfært kl. 17:14:

Benedikt Sveinsson hefur nú sent fjöl­miðlum, öðrum en Stundinni, yfir­lýsingu þar sem hann viðurkennir að hafa veitt Hjalta meðmæli. Ummælin má sjá hér að neðan:

Yfir­lýsing frá Benedikt Sveins­syni vegna máls Hjalta Sigurjóns Hauks­sonar

Í ljósi alls þess sem fram hefur komið að undan­förnu vil ég biðja þá sem um sárt eiga að binda vegna máls Hjalta Sigurjóns Hauks­sonar, afsökunar á því að hafa ljáð honum atbeina við umsókn um uppreist æru.

Hjalti Sigurjón Hauksson var um tíma tengdur kunningja­fólki okkar hjóna frá skólaárum. Hann hefur í nokkur skipti leitað aðstoðar hjá mér, fyrst og fremst vegna fjárhags­mála eða í tengslum við atvinnu­leit. Engin önnur tengsl hafa verið á milli okkar.

Á síðasta ári leitaði Hjalti til mín um meðmæli vegna uppreistar æru. Hann kom til mín með bréf, tilbúið til undir­ritunar. Ég skrifaði undir bréfið og hef ekki vitað af málinu síðan, fyrr en það kom til opinberrar umfjöllunar nú í sumar. Ég ræddi ekki meðmæla­bréfið við nokkurn mann, hvorki í stjórn­kerfinu né annars staðar, og hef aldrei verið spurður frekar út í málið. Allur aðdragandi og umbúnaður málsins var sá að verið væri að ganga frá forms­atriði fyrir umsókn til stjórn­sýslunnar.

Ég hef aldrei litið svo á að uppreist æru væri annað en lagalegt úrræði fyrir dæmda brotamenn til að öðlast að nýju tiltekin borgaraleg réttindi. Sá hugur bjó ekki að baki að rétta stöðu Hjalta gagnvart fórnar­lambi hans. Hjalta hef ég sagt að horfast í augu við gjörðir sínar og iðrast þeirra.

Það sem átti hér að vera lítið góðverk við dæmdan mann hefur snúist upp í framhald harmleiks brotaþola. Á því biðst ég enn og aftur afsökunar.

Benedikt Sveinsson

Ákall þolenda hunsað 

Stjórn­völd veittu Hjalta Sigurjóni uppreist æru sama dag og Roberti Downey áður Róberti Árni Hreiðarsson. Það var í júní sem Vísir greindi frá því að Robert Downey hefði endur­heimt lögmanns­réttindi sín í kjölfar þess að hann var sæmdur óflekkuðu mannorði.

Í kjölfarið kölluðu þolendur Roberts og aðstand­endur þeirra ítrekað eftir upplýsingum um máls­meðferðina. Til að hægt sé að veita uppreist æru þurfa umsækjendur að skila inn vottorðum frá tveimur valinkunnum mönnum og vildu þolendur Roberts og aðstand­endur þeirra vita hvaða menn höfðu ábyrgst hann. „Hverjir eru þeir tveir valinkunnu einstaklingar sem, samkvæmt lögum, settu nafn sitt við að maðurinn sé fullkomlega fær um að girnast ekki börn framar?“ spurði Bergur Þór Ingólfsson, faðir einnar stúlkunnar sem Robert braut á, í aðsendri grein á Vísi. 

Sama dag sendi dómsmála­ráðuneytið frá sér tilkynningu þar sem greint var frá þeirri ákvörðun að birta ekki nöfn þeirra sem vottuðu um góða hegðun Róberts. Í tilkynningunni var því haldið fram að umsókn Roberts og þau gögn sem henni fylgdu, þar á meðal vottorðin, heyrðu ekki undir upplýsingalög. Úrskurðar­nefnd um upplýsingamál komst nýlega að gagn­stæðri niður­stöðu. Í kjölfarið voru gögnin í máli Roberts send á fjölmiðla, en þrátt fyrir ítrekaðar fyrir­spurnir Stundarinnar hefur ráðuneytið ekki veitt upplýsingar um mál Hjalta. 

Bergur kallaði einnig eftir rökstuðningi forsætis­ráðherra fyrir því að veita Roberti uppreist æru. Ákalli hans var ekki svarað. Dóttir hans, Nína Rún Bergs­dóttir, þolandi Roberts, reyndi líka ítrekað að fá svör frá Bjarna. Í tvígang taggaði hún hann í Facebook-færslum þar sem hún vonaðist eftir svörum. „Hann hefur ekki sýnt nein viðbrögð eftir að ég taggaði hann í tveimur facebook færslum. Ég var nú ekki að búast við því þar sem hann hefur nú þegar sýnt að hann snýr baki við öllu sem honum finnst óþægilegt, eins og kynferðis­ofbeldi,“ sagði hún í samtali við DV.

Spurningar hennar voru einfaldar: „Hvað gerðist í þessu ferli? Af hverju er öll þessi leynd? Er eitthvað sem hann vill ekki að við komumst að? Maðurinn missti æruna við að brjóta á okkur. Bjarni ætti að sýna okkur þá virðingu og heiðar­leika að svara spurningum okkar.“

Einum og hálfum mánuði greindi Bjarni Benediktsson frá því að hann hefði ekki verið starfandi innan­ríkis­ráðherra á þeim tíma sem Robert Downey fékk meðmæli, þvert á það sem skilja mátti af viðtali RÚV við hann í vor þegar hann sagðist hafa tekið „við niður­stöðu úr ráðuneytinu sem hafði fengið sína hefð­bundnu meðferð.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár