Maðurinn sem nauðgaði stjúpdóttur sinni í tólf ár kærði mann fyrir nafnbirtingu á sér

„Þetta eru sam­tök um að eyði­leggja líf ann­ars fólks.“ segir mað­ur­inn sem nauðg­aði stjúp­dóttur sinni „nær dag­lega“ í tólf ár, en hann kærði sam­tökin Stöndum saman fyrir að birta nafn hans. Hann fékk upp­reist æru þann 16. sept­em­ber.

Maðurinn sem nauðgaði stjúpdóttur sinni í tólf ár kærði mann fyrir nafnbirtingu á sér

Maður, sem mis­not­aði stjúp­dóttur sína í 12 ár, en var sæmdur óflekk­uðu mann­orði af for­seta Íslands í fyrra, kærði aðstand­endur vef­síð­unnar Stöndum saman til lög­regl­unnar árið 2013 fyrir að birta upp­lýs­ingar um sig. Þetta gerði hann í kjöl­far þess að einn af umsjón­ar­mönnum Facebook-síð­unnar Við birtum nöfn og myndir af dæmdum barn­a­níð­ungum hafði sam­band við rútu­fyr­ir­tæki sem mað­ur­inn vann hjá og greindi frá því að hann væri barn­a­níð­ingur. Í kjöl­farið missti mað­ur­inn vinn­una. 

„Hann fór til lög­regl­unnar og lagði fram kæru en það var aldrei neitt gert í mál­inu, enda ekk­ert ólög­legt verið gert, en greyið upp­lifði sig sem fórn­ar­lamb,“ segir Skúli Steinn Vil­bergs­son í sam­tali við Stundina, en hann var einn af for­sprökkum sam­tak­anna Stöndum saman á sínum tíma.

„Ég fékk upp­reist æru eftir að hafa verið rek­inn 13 sinnum úr vinnu,“ sagði mað­ur­inn þegar Stundin ræddi við hann fyrr í vik­unni. „Þetta Stöndum saman er mesta kjaftæði sem ég hef heyrt á ævinni. Þetta eru sam­tök um að eyði­leggja líf ann­ars fólks.“ 

Maðurinn var dæmdur í fimm og hálfs árs fang­elsi árið 2004 fyrir að hafa nauðgað stjúp­dóttur sinni nær dag­lega frá því hún var um 5 ára gömul þar til hún var tæp­lega 18 ára. Um er að ræða þyngsta dóm sem fallið hafði vegna kyn­ferð­is­brota gegn barni á þessum tíma, en Hæsti­réttur taldi mann­inn hafa mis­notað frek­lega vald sitt yfir stúlkunni sem stjúp­faðir, brotið ítrekað og gróf­lega gegn henni og valdið henni djúp­stæðum skaða. Hann fékk upp­reist æru þann 16. sept­em­ber síð­ast­lið­inn, sama dag og Robert Downey, sem var dæmdur fyrir að brjóta kyn­ferð­is­lega gegn fimm stúlkum, meðal ann­ars meðan hann var um sex­tugt en stúlk­urnar á ung­lings­aldri.

Óskar Ingi Þor­gríms­son, stofn­andi Facebook-síð­unnar, greindi frá því í sam­tali við Vísi árið 2014 að hann hefði fengið upp­lýs­ingar um að mað­ur­inn starf­aði sem rútu­bíl­stjóri og starf­aði í kringum börn. „Ég hafði sam­band við fyr­ir­tækið sem hann starf­aði hjá og greindi þeim frá því að hann hefði setið inni fyrir barn­a­níð.“ Í bréfi sem Óskari barst frá rík­is­sak­sókn­ara nokkrum mán­uðum síðar kom fram að gögn máls­ins hefðu verið yfir­farin og málið væri ekki lík­legt til sak­fell­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár