Pálmi tekur 370 milljóna arð til félags í Lúx

Góðærið á Íslandi hefur skotið traustum fótum undir ferða­skrif­stofu Pálma Har­alds­sonar enda hafa Íslend­ingar aldrei ferð­ast meira til útlanda.

Pálmi tekur 370 milljóna arð til félags í Lúx
Arður í góð­æri Ferða­skrif­stofa Pálma Har­alds­sonar hefur greitt 370 millj­óna króna arð til eign­ar­halds­fé­lags hans í Lúx­em­borg á síð­ustu þremur árum enda hefur ríkt góð­æri á Íslandi sem sést meðal ann­ars á utan­lands­ferðum lands­manna.

Ferða­skrif­stofa Pálma Har­alds­sonar, sem yfir­leitt var kenndur við eign­ar­halds­fé­lagið Fons, skilar stöð­ugum hagn­aði ár eftir ár. Í fyrra skil­aði fyr­ir­tæki hans, Ferða­skrif­stofa Íslands, tæp­lega 40 millj­óna króna hagn­aði og var greiddur 27 millj­óna arður til fyr­ir­tækis Pálma í lág­skatta­rík­inu Lúx­em­borg, Academy Sarl. Árið þar á undan, 2015, var greiddur 170 millj­óna króna arður úr félag­inu, eða 35 pró­sent af hlutafé félags­ins, eftir að félagið hafði skilað rúm­lega 130 millj­óna króna hagn­aði. Árið 2014 nam arð­greiðslan ríf­lega 172 millj­ónum. Undir Ferða­skrif­stofu Íslands heyra meðal ann­ars ferða­skrif­stof­urnar Úrval Útsýn, Sum­ar­ferðir og Plús­ferðir.

Mikil upp­sveifla hefur verið í ferðum Íslend­inga til útlanda síð­ast­liðin ár í því góð­æri sem ríkt hefur í land­inu og sést þess stað í rekstri Ferða­skrif­stofu Íslands. Samkvæmt frétta­síð­unni túristi.is var júlí síð­ast­lið­inn næst­stærsti ferða­mán­uður Íslend­inga frá upp­hafi mæl­inga en þá flugu tæp­lega 62.500 Íslend­ingar til útlanda, eða um tvö þús­und manns á hverjum degi. Á vef­síð­unni kemur fram …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ferðaþjónusta

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár