„Í flestum löndum hefði ráðherra sagt af sér“

Sig­ur­mundur G. Ein­ars­son, eig­andi Viking Tours í Vest­manna­eyjum, telur að ráð­herra sem tekur ákvörðun eins og Jón Gunn­ars­son sam­göngu­ráð­herra gerði segði af sér í flestum öðrum löndum en á Íslandi. Haf­svæðið milli Íslands og Vest­manna­eyja hefur verið skil­greint sem fjörður eða flói til að rýmka fyrir far­þeg­a­sigl­ingum. Slegið var af örygg­is­kröfum vegna sigl­ingar Akraness milli lands og Eyja.

„Í flestum löndum hefði ráðherra sagt af sér“
Sig­ur­mundur G. Ein­ars­son Eigandi Viking Tours í Vest­manna­eyjum segir ákvörðun sam­göngu­ráð­herra um að heim­ila Akra­nes­ferj­unni að sigla milli lands og Eyja vera hags­muna­pot og brot á jafn­ræð­is­reglum. Mynd: Úr einkasafni

„Þetta heitir mis­munun og ekk­ert annað. Þetta heitir brot á jafn­ræð­is­reglum og í flestum löndum hefði ráð­herra sagt af sér eftir svona aðgerðir,“ segir Sig­ur­mundur G. Ein­ars­son, eig­andi Viking Tours í Vest­manna­eyjum, um ákvörðun Jóns Gunn­ars­sonar sam­göngu­ráð­herra um að leyfa ferj­unni Akranes að sigla frá Land­eyja­höfn til Heima­eyjar um versl­un­ar­manna­helg­ina.

Pistill Sig­ur­mundar um sama efni, „Hið „nýja“ Ísland - viljum við það?“ hefur vakið tals­verða athygli í vik­unni. Í pistl­inum ræðir hann um „hags­muna­gæslu­menn“ sem „haga sér eins og þeir eigi Ísland skuld­laust“. „Ég er búinn að fá nóg af hags­muna­potur­unum sem kippa í spott­ana og telja sig geta vaðið yfir allt og alla þegar þeim hentar. Ég spyr: Eigum við ekki að krefj­ast sama rétt­lætis og jafn­ræðis fyrir alla?“

Eins og kunn­ugt er hafn­aði Sam­göngu­stofa umsókn Eimskips um að nota ferj­una Akranes til sigl­inga milli lands og Eyja um versl­un­ar­manna­helg­ina. Vest­manna­eyja­bær kærði ákvörð­un­ina hins vegar til sam­göngu­ráðu­neyt­is­ins sem felldi í kjöl­farið úr gildi ákvörðun Sam­göngu­stofu, eftir yfir­lýs­ingar Jóns Gunn­ars­sonar sam­göngu­ráð­herra, sem sigldi síðan sjálfur með Akra­nes­inu til Eyja fyrir þjóð­há­tíð. 

Breytti bát fyrir tugi milljóna til að uppfylla kröfur

Sig­ur­mundur hefur rekið ferða­þjón­ustu í Vest­manna­eyjum í mörg ár. Árið 2013 keypti fyr­ir­tækið far­þega­bát með það fyrir augum að sigla á milli Land­eyja­hafnar og Heimeyjar. Hann seg­ist hins vegar hafa þurft að breyta bátnum fyrir tugi millj­óna til þess að upp­fylla þær kröfur sem gerðar eru til far­þega­báta sem sigla á úthafi, B-flokki. „Við byrj­uðum að sigla til Land­eyja­hafnar, sem eng­inn hafði gert áður, í byrjun árs 2015 og fluttum um 2.500 manns milli lands og Eyja frá jan­úar til apríl. Árið 2016 fengum við aftur samn­ing við Vegagerð og sigldum frá Land­eyja­höfn frá jan­úar og fram í maí. Þá fluttum við um 1.500 manns, en þennan vetur var mun verra veður og því farnar færri ferðir. Núna árið 2017 neit­uðu þeir að gera samn­ing við okkur þar sem þetta þóttu of fáar sigl­ingar,“ segir Sig­ur­mundur. 

„Síðan er þessi ferja færð hingað yfir til að sigla á Þjóð­há­tíð án þess að upp­fylla nauð­syn­legar kröfur.“

„Ég er með skip sem hefur fullt leyfi til sigl­inga til Land­eyja­hafnar og þessi ár, 2014 til 2016, fluttum við að jafn­aði tvö þús­und manns á Þjóð­há­tíð í sam­starfi við ÍBV. Í sumar var hins vegar ekki haft sam­band við okkur, heldur tók ráð­herra sig til og breytti haf­svæð­inu hérna á milli, þvert á alþjóða­reglur, svo Baldur fengi að sigla hérna á milli í vor. Svo leigði Eimskip ferju fyrir Akranes, sem er til­rauna­verk­efni, og fengu fullt af pen­ingum bæði frá Akra­nesbæ og Reykja­vík­ur­borg. Síðan er þessi ferja færð hingað yfir til að sigla á Þjóð­há­tíð án þess að upp­fylla nauð­syn­legar kröfur. Á meðan liggur minn bátur hérna óhreyfður, sem er búið að breyta til að upp­fylla allar þessar kröfur sem voru settar, en ráð­herra tekur sig til og leyfir þessar sigl­ingar þvert á ákvörðun Sam­göngu­stofu.“

Hafsvæðið við Eyjar skilgreint sem fjörður eða flói

Haffærni skipa er skipt í flokka. A-flokkur er úthafs­sigl­ingar, B-flokkur er strand­sigl­ingar við úthaf og C-flokkur sigl­ingar um firði og flóa. Haf­svæðið á milli Íslands og Vest­manna­eyja er í B-flokki, en var tíma­bundið fært yfir í C-flokk yfir sum­ar­mán­uð­ina. 

Vest­manna­eyja­bær notar þessa skil­grein­ingu á haf­svæð­inu milli lands og Eyja sem rök í kærunni til sam­göngu­ráðu­neyt­is­ins vegna synj­unar Sam­göngu­stofu á að veita ferj­unni Akranes leyfi til að sigla milli Land­eyja­hafnar og Heima­eyjar. Hafsvæði á sigl­inga­leið­inni milli Reykja­víkur og Akraness sé flokkað sem haf­svæði C og haf­svæðið milli Land­eyja­hafnar og Vest­manna­eyja sé einnig haf­svæði C. Undir þessi rök tekur sam­göngu­ráðu­neytið. Þar sem ferjan Akranes hafi nú þegar tíma­bundna heim­ild frá Sam­göngu­stofu til sigl­inga milli Reykja­víkur og Akraness sé ekk­ert fram komið að mati ráðu­neyt­is­ins sem rétt­lætt geti að synjað verði um heim­ild til sigl­inga ferj­unnar á sam­bæri­legu haf­svæði milli Vest­manna­eyja og Land­eyja­hafnar enda séu bæði haf­svæðin í flokki C, skil­greint sem fjörður eða flói. 

Jón Gunn­ars­sonSam­göngu­ráð­herra hefur gripið inn í ákvarð­anir Sam­göngu­stofu, með því að slá af örygg­is­kröfum í far­þeg­a­sigl­ingum.

Slegið af öryggiskröfum

Synjun Sam­göngu­stofu snérist hins vegar að litlu leyti um skil­grein­ingar á haf­svæðum. Þór­hildur Elín Elín­ar­dóttir, sam­skipta­stjóri Sam­göngu­stofu, segir í sam­tali við Stundina að Akra­nes­ferjan flokk­ist sem háhraða­skip og um slík skip gildi Evr­ópu­reglur sem hafa verið inn­leiddar hér á landi. „Þetta snýr fyrst og fremst að rekstr­ar­að­il­anum og að hann hafi til að mynda gert áhættu­mat á skip­inu og sigl­ingu þess við þessar til­teknu aðstæður og á þess­ari til­teknu leið. Rekstr­ar­að­il­inn þarf að hafa gert sér full­nægj­andi grein fyrir mögu­legri áhættu og búinn að mynda sér verk­lags­reglur til þess að mæta mögu­legri áhættu,“ segir Þór­hildur.

„Rekstr­ar­að­il­inn þarf að hafa gert sér full­nægj­andi grein fyrir mögu­legri áhættu“

Í umsögn Sam­göngu­stofu vegna stjórn­sýslu­kæru Vest­manna­eyja­bæjar segir meðal ann­ars að áður en unnt sé að hefja rekstur háhraða­fars þurfi að leggja fram gögn varð­andi starf­rækslu. Rekstr­ar­að­ili þurfi því að leggja fram rekstrar,- við­halds- og þjálf­un­ar­hand­bækur í þessu skyni eins og við á fyrir fyr­ir­hug­aðan rekstur og sigl­inga­leiðir sem þurfi sam­þykki yfir­valda. Í stuttu máli megi segja að í þessu fel­ast kröfur á að lýsa starf­rækslu fars­ins með til­liti til við­eig­andi sigl­inga­leiða. Þetta varðar meðal ann­ars sér­stakar aðstæður sem kunni að vera fyrir hendi, verk­lag við rým­ingu, vakt- og hvíld­ar­tíma, og einnig neyðar- og við­bragðs­á­ætl­anir fyrir sigl­inga­leiðir, þar með talið ráð­staf­anir fyrir far­þega sem þurfa sér­staka aðstoð ef til björg­unar kemur. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár