Tíu þúsund manns skrifað undir áskorun til Útlendingastofnunar

Útlend­inga­stofnun ákvað að veita far­lama föður og ell­efu ára dóttur hans ekki áheyrn og hefur vísað þeim til Þýska­lands á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar. Rúmlega 10 þús­und manns hafa skorað á Útlend­inga­stofnun að veita afgönsku feðgin­unum áheyrn.

Tíu þúsund manns skrifað undir áskorun til Útlendingastofnunar
Í afmæl­is­veisl­unni Feðginin voru að vonum mjög kát með afmæl­is­veisl­una sem lukk­að­ist vel.

Útlend­inga­stofnun synj­aði að taka hæl­is­um­sókn feðgin­anna Abrahims Maleki og ell­efu ára gam­allar dóttur hans, Hanyie, til efn­is­með­ferðar. Feðginin eru afgönsk og þurftu að leggja í hættu­lega för til að kom­ast hingað til lands. Þá glímir Abrahim við bæklun á fæti sem hefur það í för með sér að litla stúlkan hefur þurft að ann­ast föður sinn og sjá um hús­verk og annað heim­il­is­hald. Rúmlega 10 þús­und und­ir­skriftir hafa safn­ast þar sem kraf­ist er að feðginin fái áheyrn hjá stjórn­völdum

Abrahim Maleki og ell­efu ára gömul dóttir hans, Hanyie, geta átt von á því að verða send úr landi hvenær sem er. Útlend­inga­stofnun hafn­aði því að veita feðgin­unum efn­is­með­ferð og stað­festi kæru­nefnd útlend­inga­mála þá nið­ur­stöðu. Stundin fjall­aði ítar­lega um sögu og stöðu feðgin­anna.

Fyrir und­ir­skrifta­söfn­un­inni standa Solaris, hjálp­ar­sam­tök fyrir hæl­is­leit­endur og flótta­fólk á Íslandi og hafa þegar fréttin er skrifuð 10,697 und­ir­skriftir safn­ast. „Við biðlum til ykkar að aðstoða okkur með að skora á stjórn­völd að hætta að mis­nota Dyfl­inn­ar­regl­una, virða mann­rétt­indi og veita Abrahim og Hanyie áheyrn í þeirra máli. Þau hafa mátt þola nóg,“ segir meðal ann­ars í áskor­un­inni.

Vísað brott þrátt fyrir viðkvæma stöðu

Útlend­inga­stofnun hafn­aði því, sem fyrr segir, að taka umsókn Abrahims og Hanyie um alþjóð­lega vernd á Íslandi til efn­is­með­ferðar. Var sú ákvörðun stað­fest af kæru­nefnd útlend­inga­mála. Nið­ur­staða stofn­un­ar­innar var sú að Abrahim og Hanyie væru ekki talin í sér­stak­lega við­kvæmri stöðu. Þau skyldu yfir­gefa Ísland og bæri að senda þau til Þýska­lands.

Hins vegar komst kæru­nefnd útlend­inga­mála að þeirri nið­ur­stöðu að feðginin væru í sér­stak­lega við­kvæmri stöðu. Þrátt fyrir það var ekki fall­ist á að taka mál þeirra til efn­is­með­ferðar. Þau geta því átt von á því að verða flutt á brott hvenær sem er á næstu dögum, en þeim var til­kynnt að þau yrðu látin yfir­gefa landið í síð­asta lagi þann 19. júlí, fyrir rúmum tveimur vikum síðan.

300 manns mættu í afmælisveislu Hanyie

Í ljósi þess að feðgin­unum bíða þau örlög að vera send úr landi var ákveðið að láta heit­ustu ósk Hanyie ræt­ast, að fá að halda upp á afmælið sitt hér á landi. Veislan fór fram í síð­ustu viku en Hanyie á afmæli í októ­ber. Þetta gekk von­um fram­ar og var al­veg æðis­legt. Það var mik­ill stuðn­ing­ur og kær­leik­ur,“ sagði Guðmund­ur Karl Karls­son, einn skipu­leggj­enda veisl­unnar við mbl.is.

Mikill fjöldi manns mætti í veislunna sem haldin var á Klambra­túni. Ókunn­ugir og vinir færðu Hanyie góðar gjafir en hún fékk til dæmis Iphone-síma og um 600 þús­und krónur. Það mun­ar auð­vitað því­líkt um það, sér­stak­lega þegar maður á ekki neitt,“ sagði Guðmund­ur við mbl.is. „Það er klárt mál að þetta er pen­ing­ur sem mun nýt­ast vel.“

Líklega send til Afganistan

Fyrir fjórum vikum var á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar ákveðið að senda feðginin til Þýska­lands. Þar er nær­full­víst að þau verði send til Afganistan. Þar á Hanyie engin tengsl önnur en þjóð­erni for­eldra sinna og hefur aldrei búið þar. Hún var fædd í flótta­manna­búðum í Íran árið 2005 en móðir hennar yfir­gaf hana ári síðar. Allt sitt líf hefur hún verið á flótta og hefur hann oft reynst háska­legur. Þá hefur Abrahim verið á flótta í nær­fellt tvo ára­tugi. Þau óska þess einskis frekar en að fá að fá hæli hér á landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu