Svipti sig lífi á átján ára afmælinu

Halla Mildred Cramer ætlar að ganga Reykja­nes­braut­ina frá Álverinu í Straums­vík að Innri-Njarð­vík­ur­kirkju til að minn­ast syst­ur­sonar síns, Krist­ó­fers Arnar Árna­sonar, og styrkja um leið PIETA Ísland, sem er úrræði fyrir ein­stak­linga í sjálfs­vígs­hug­leið­ingum. Krist­ó­fer Örn svipti sig lífi á 18 ára afmæl­is­dag­inn sinn árið 2014. „Ég vil ekki að aðrir upp­lifi að missa ein­hvern sem þeir elska vegna sjálfs­vígs, hvort sem það er vinur eða fjöl­skyldu­með­limur.“

Svipti sig lífi á átján ára afmælinu
Gengur í minn­ingu frænda síns Halla Mildred Cramer gengur í minn­ingu frænda síns, en hægt er að fylgj­ast með göng­unni í gegnum Strava-snjall­for­ritið og er vel­komið að fylgja henni um styttri eða lengri tíma. Um leið vill hún vekja athygli á starfi Pieta-sam­tak­anna sem styðja fólk sem glímir við sjálfs­vígs­hugs­anir. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Krist­ó­fer var ynd­is­legur og ljúfur drengur sem vildi öllum vel,“ segir móð­ur­systir hans, Halla Mildred Cramer. „Í mínum augum var hann og verður alltaf litli Krist­ó­fer minn sem ég pass­aði þegar hann var lít­ill. Þegar Krist­ó­fer fædd­ist var það besta að fá að vera stóra frænka hans. Hann dáði mig og ég dýrk­aði hann. Síðustu árin áður en hann lést spjöll­uðum við mikið saman og áttum góðar og skemmti­legar stundir. Eldri dóttir mín, sem var tíu ára þegar hann lést, dýrk­aði frænda sinn og fannst alltaf gaman að sjá hann og hljóp alltaf í fangið á honum. Hann hafði mjög gaman af því að fífl­ast með henni og þau gátu sko hlegið saman.“

Hjálpar að tala saman

Halla segir að systir sín, móðir Krist­ó­fers, sé búin að standa sig eins og hetja. „Krist­ó­fer var litli dreng­ur­inn hennar. Það hefur hjálpað fjöl­skyld­unni að takast á við miss­inn með því …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár