Eftir fjölda tilrauna hefur mér enn ekki tekist að verða fullorðin. Eitt sinn gerði ég tilraun til þess þegar ég var orðin þreytt á morgunsöngnum í mömmu og hrópunum í pabba þegar Liverpool skorar mark. Ég lagði leið mína í Hlíðarnar til að skoða íbúð sem auglýst var til leigu, þar beið mín kjallarahola sem kostaði hálfan handlegginn, með sameiginlegu baðherbergi með öðrum íbúum hússins. Það var ekki mikið betra en núverandi lifnaðarháttur minn svo ég sneri því aftur í Vesturbæinn, með skottið milli lappanna, og hélt lífi mínu áfram sem fullþroska eilífðarunglingur í Vesturbænum.
Í Vesturbænum líkist heimili mitt einna helst kommúnu, þar sem fimm fullorðnir deila saman klósetti og kvöldstundum. Þrátt fyrir fjölda tilrauna hefur aumingja miðaldra foreldrum mínum ekki tekist að koma okkur út og spyr mamma stundum hvort við ætlum að koma með þeim á elliheimili einn daginn. Ég efast um að þar sé pláss, allavega ekki í Reykjavík. Um daginn var afi minn til dæmis sendur af hvíldarinnlögn á Landakotsspítala, rakleiðis á Þjóðveg 1, gegnum Hvalfjarðargöngin og komið fyrir á elliheimili í Borgarnesi. Þangað hefur hann enga tengingu, en finnst útsýnið fínt.
En ég gefst ekki upp því ég er með plan. Ég legg til að kynslóðin mín, sem getur allt en á ekkert, geri byltingu. Ég legg til að við kaupum bæ sem var auglýstur á sölu í Pensylvaníu-ríki í Bandaríkjunum og byggjum upp nýtt Ísland. Þar verður fullt af litlum íbúðum og engir foreldrar – gætum kallað það Bláa hnöttinn. Á Íslandi geta afar og ömmur flutt inn í gömlu herbergi unga fólksins og miðaldra millistéttin getur notið góðærisins í friði.




















































Athugasemdir