Það er varla neinum blöðum um það að fletta lengur - það er í gangi einhvers konar herferð gegn Andra Snæ Magnasyni. Einhverjir sem sjá sér hag í því að skemma fyrir hugsanlegu forsetaframboði hans - sem yrði ekki síst á forsendum umhverfisverndar - sjá nú bersýnilega til þess að á hverjum einasta degi birtast misjafnlega ógeðfelldar „fréttir“ sem virðast beinlínis hafa það hlutverk að kasta rýrð á Andra Snæ.
Og fylla fólk tortryggni í hans garð.
Nú er ég ekki og hef aldrei verið PR-maður á launum hjá ríkum köllum, svo ég veit ekki hvernig svona herferð gengur fyrir sig. Væntanlega eru þær herferðir taldar áhrifaríkastar þar sem hægt er búa til það andrúmsloft að herferðin reki sig sjálf - og fólk fari sjálft að taka þátt í henni - án þess að vera beinlínis skipað fyrir.
Svona eins og þegar Hinrik II Englandskóngur grenjaði yfir hirð sinni: „Æ, getur ekki einhver losað mig við þennan vandræðaprest?!“
Og svo þegar fjórir riddarar hans fóru og drápu vandræðaprestinn Thomas Becket, þá gat kóngur sagt: Ég skipaði þeim þetta ekki!
Ógeðfelldast af öllu því sem enn hefur birst í herferðinni gegn Andra Snæ er grein sem Vilhjálmur Birgisson birtir á netinu í dag.
Þar er enn höggvið í þann knérunn að skíta út rithöfundinn af því hann hefur þegið listamannalaun, en síðan er það með ótrúlegum hætti tengt við gagnrýni hans á stóriðjustefnuna.
Og Vilhjálmur skrifar:
„Það er dapurlegt að heyra rithöfundinn sem skilað hefur einni eða tveimur bókum á síðustu 10 árum og verið á launum frá íslenskum skattgreiðendum ráðast sífellt á störf sem hér skapa gjaldeyristekjur því það er mikilvægt að við sýnum öllum störfum virðingu og hættum að tala þau niður.“
Nú getur Vilhjálmur Birgisson eflaust reynt að bera í bætifláka fyrir þessi sorglegu orð með því að hann hafi ekki meint neitt illt með þeim.
En af því við erum ekki fífl - hvað sem Vilhjálmur Birgisson kann að halda - þá vitum við að þessi orð þýða eftirfarandi:
„Andri Snær Magnason á að halda kjafti og ekki gagnrýna höndina sem gefur honum að éta.“
Það er bæði ótrúlegt og sorglegt að verða vitni að svona skoðunum á Íslandi árið 2016.




















































Athugasemdir