Reyna að koma á fundi um skiptingu heimsins og örlög Úkraínu

Vladimír Pútín vill hitta Donald Trump Banda­ríkja­for­seta og Xi Jinping, leið­toga Kína, til að skipta heim­inum í áhrifa­svæði stór­velda. Fund­ur­inn yrði án full­trúa Evrópu.

Reyna að koma á fundi um skiptingu heimsins og örlög Úkraínu
Pútín og Trump Hittust með tákn­rænum hætti í Alaska í fyrra, land­svæð­inu sem Rússar seldu Banda­ríkj­unum 1867. Mynd: AFP

Vladimír Pútín Rúss­lands­for­seti hefur lagt til að hann, Donald Trump Banda­ríkja­for­seti og Xi Jinping, leið­togi Kína, fundi í næsta mán­uði um stríðið í Úkraínu. Volody­myr Zelensky Úkra­ínu­for­seti tæki ekki þátt í við­ræð­unum. Samkvæmt heim­ildum The Wall Street Journal vill Pútín með þessu freista þess að ná sam­komu­lagi um lok fjög­urra ára stríðs sem yrði Rússum hag­stætt.

Tillagan kemur á sama tíma og sam­skipti Trumps og Pútíns hafa hlýnað, sem hefur valdið áhyggjum meðal Úkra­ínu­manna og banda­manna þeirra í Washington og Evrópu. Banda­ríkja­for­seti hefur þó ekki sam­þykkt að taka þátt í slíkum fundi, að sögn hátt­setts banda­rísks emb­ætt­is­manns.

Rússnesk stjórn­völd hafa lagt til að leið­tog­arnir ræði saman sam­hliða leið­toga­fundi APEC, efna­hags­sam­vinnu­vett­vangs Asíu- og Kyrra­hafs­ríkja, sem fram fer í kín­versku tækni­borg­inni Shenzhen 18. og 19. nóv­em­ber. Samkvæmt heim­ildum blaðs­ins hafa kín­versk stjórn­völd gefið til kynna að þau myndu ekki leggj­ast gegn fund­inum ef Trump sam­þykkti þátt­töku.

Dmitry Peskov, tals­maður …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    1984 eftir Orwell er orðin að handbók en ekki lengur dystopísk skáldsaga. Ætla önnur ríki að sætta sig við að vera þrælar og leppar gamalla karla með mikilmennsku brjálæði.
    Heimurinn hefur aldrei verið fullkominn en núna er kapphlaupið orðið um það hver verður fyrstur á botninn.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár