Nátt­úru­upp­lifun Páll Jakob Líndal segir tengsl fólks við nátt­úr­una geta haft áhrif á hvernig það upp­lifir lands­lag og breyt­ingar á umhverfi sínu. Mynd: Shutterstock

Fegurðarskyn á sér „djúpar rætur í sálarlífi okkar“

Páll Jakob Líndal, doktor í umhverf­is­sál­fræði, segir feg­urð­ar­skyn fólks byggja á gild­is­mati þess og að því sé ekki auð­velt að breyta. Við opnun Vað­öldu­vers sagði Jóhann Páll Jóhanns­son umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra að við þyrftum að „laga feg­urð­ar­skynið okkar að orku­skipta­bylt­ing­unni“.

„Þó að við séum fljót að leggja mat á umhverfi okkar, þá þýðir það ekki að þetta sé yfir­borðs­legt og ein­hver léttúð. Þar að baki geta verið ofboðs­lega djúpar ástæður,“ segir Páll Jakob Líndal, doktor í umhverf­is­sál­fræði. Heim­ildin ræddi við hann um feg­urð­ar­skyn fólks gagn­vart umhverfi og nátt­úru.

Í sept­em­ber var vind­orku­ver við Vaðöldu opnað við hátíð­lega athöfn þar sem Jóhann Páll Jóhanns­son umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra ávarp­aði meðal ann­ars gesti. Í ávarp­inu sagði ráð­herr­ann að honum leidd­ist „trumpísk“ orð­ræða and­stæð­inga vind­orku­vera og benti á að vind­myllur væru tákn­mynd orku­skipt­anna. „Við þurfum líka bara svo­lítið að læra að meta þetta og laga feg­urð­ar­skynið okkar að orku­skipta­bylt­ing­unni,“ sagði Jóhann Páll um málið.

Páll segir að feg­urð­ar­skyn sé flókið fyr­ir­bæri og sem stendur skilji fræðin það ekki til fulls. „Þetta er upp­lifun og ef við horfum á það, þá er það sam­sett fyr­ir­bæri hvernig við upp­lifum umhverfi okkar. Það getur verið til­finn­inga­leg …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Náttúruvernd

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár