Vilja skriflega staðfestingu á að Ísland sé ekki umsóknarríki að ESB

Guð­rún Haf­steins­dótt­ir, Sig­mund­ur Dav­íð Gunn­laugs­son og Stefán Vagn Stef­áns­son leggja til að rík­is­stjórn­in til­kynni Evr­ópu­sam­band­inu að eng­in að­ild­ar­um­sókn frá Ís­landi liggi fyr­ir. Sam­bæri­leg til­laga var áð­ur flutt af Ingu Sæ­land á sex lög­gjaf­ar­þing­um án þess að hljóta af­greiðslu.

Vilja skriflega staðfestingu á að Ísland sé ekki umsóknarríki að ESB
Nei Sigmundur Davíð og Guðrún börðust saman fyrir því að þjóðin segði nei við viðræðum við Evrópusambandið. Mynd: Golli

Leiðtogar stjórnarandstöðuflokkanna á Alþingi vilja fela ríkisstjórninni að tilkynna Evrópusambandinu „með skýrum og ótvíræðum hætti“ að Ísland sé ekki umsóknarríki. Þau vilja svo að ríkisstjórnin fái skriflega staðfestingu frá Evrópusambandinu á að svo sé.

Þetta er efni stuttrar og snarprar þingsályktunartillögu Guðrúnar Hafsteinsdóttur, formanns Sjálfstæðisflokksins, Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Miðflokksins, og Stefáns Vagns Stefánssonar, þingflokksformanns Framsóknar, um stöðu Íslands gagnvart ESB.

Í greinargerð tillögunar vísa þremenningarnir til þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst síðastliðinn um hvort hefja ætti aðildarviðræður að nýju. Þeir túlka niðurstöðuna sem vilja þjóðarinnar til þess að Ísland sé ekki heldur umsóknarríki.

„Það liggur í hlutarins eðli að ríki sem vill ekki aðildarviðræður við Evrópusambandið, og enn síður gerast aðili að því, á ekki að vera umsóknarríki um aðild að sambandinu,“ segir í greinargerðinni.

Í greinargerðinni er rifjað upp að utanríkisráðherra, í ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks, hafi árið 2015 tilkynnt ESB að ríkisstjórnin hygðist ekki hefja aðildarviðræður að nýju …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Horft til Evrópu

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aft­ur í hjúkr­un­ar­fræði eft­ir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­il­ar héldu að Björn Ólaf­ur Har­alds­son væri út­úr­dóp­að­ur þeg­ar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þeg­ar áfall­ið reið yf­ir og þurfti ít­rek­að að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­un­um. Nú stefn­ir hann á að klára nám­ið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár