Fleiri hótelherbergi en færri gistinætur

Fram­boð hót­el­her­bergja jókst um 1,7 pró­sent í ág­úst en gistinótt­um á hót­el­um fækk­aði um 2,5 pró­sent. Gistinótt­um á öðr­um skráð­um gisti­stöð­um, eins og tjald­svæð­um og sum­ar­hús­um, fjölg­aði hins veg­ar og jókst heild­ar­fjöld­inn um 3,3 pró­sent á milli ára.

Fleiri hótelherbergi en færri gistinætur
Fjölgað Alls voru 186 hótel starfandi í ágúst með 12.817 herbergi, en hótelin voru 182 í sama mánuði í fyrra. Mynd: EPA

Gistinóttum á hótelum landsins fækkaði í ágúst þrátt fyrir að hótelum og herbergjum hefði fjölgað frá sama tíma í fyrra. Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands voru gistinæturnar rúmlega 653 þúsund, samanborið við tæplega 670 þúsund í ágúst 2025. Það jafngildir 2,5 prósenta fækkun á milli ára. 

12.817
herbergi
á hótelum í ágúst

Á öðrum skráðum gististöðum fjölgaði gistinóttum hins vegar. Þegar allir gististaðir eru taldir með, meðal annars gistiheimili, tjaldsvæði og orlofshús, var áætlaður heildarfjöldi gistinátta rúmlega 1.549 þúsund í ágúst. Það var 3,3 prósenta aukning frá sama mánuði í fyrra.

Þar af voru rúmlega 192 þúsund gistinætur á gistiheimilum og um 704 þúsund á öðrum tegundum skráðra gististaða, svo sem tjaldsvæðum og í orlofshúsum.

Framboð hótelherbergja jókst á sama tíma um 1,7 prósent. Alls voru 186 hótel starfandi í ágúst með 12.817 herbergi, en hótelin voru 182 í sama mánuði í fyrra. Herbergjanýting dróst saman um 1,1 prósentustig á landsvísu. …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“
5
StjórnmálHorft til Evrópu

Þrátt fyr­ir nei „lok­um við að sjálf­sögðu ekki á Evr­ópu“

For­sæt­is­ráð­herra seg­ir að nið­ur­staða þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unn­ar verði virt en ekki komi til greina að loka á Evr­ópu eða grafa und­an EES-samn­ingn­um. Orð henn­ar falla á sama tíma og stjórn­ar­and­stað­an vill stað­fest­ingu á stöðu að­ild­ar­um­sókn­ar­inn­ar og frum­varp um bók­un 35 ligg­ur aft­ur fyr­ir Al­þingi.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár