Kanadíski tölvunarfræðingurinn Yoshua Bengio, sem er talinn einn af frumkvöðlum gervigreindar, segir mannkynið vera „að missa stjórnina“ á tækninni og að koma þurfi á öryggisreglum sem minni á það regluverk sem gildir um kjarnorkuvopn.
Ótti við hættur af gervigreind hefur aukist á undanförnum vikum. Starfsmenn stórra tæknifyrirtækja hafa sagt upp störfum sínum og varað við því að hröð þróun tækninnar geti jafnvel skapað tilvistarógn fyrir mannkynið verði ekki dregið úr hraðanum.
„Samfélagið þarf tíma til að koma nauðsynlegum varúðarráðstöfunum á“
Bengio er prófessor við Háskólann í Montreal og hlaut Turing-verðlaunin árið 2018, sem oft eru kölluð Nóbelsverðlaun tölvunarfræðinnar, ásamt Geoffrey Hinton, sem gjarnan er nefndur „guðfaðir gervigreindar“.
Að mati Bengio er „ástæða fyrir því að fyrirtæki segja að þetta gangi of hratt og að við séum að missa stjórnina“.
„Fólk eins og ég hefur lengi búist við þessu,“ sagði hinn 62 ára Bengio í samtali við AFP á þriðjudag …






















































Athugasemdir