Skeifan versti staðurinn í borginni — óháð ferðamáta

Skeif­an sker sig úr sem sá stað­ur í Reykja­vík sem borg­ar­bú­ar tengja oft­ast við nei­kvæða upp­lif­un af sam­göng­um. Það gild­ir óháð því hvort fólk ek­ur, geng­ur, hjól­ar eða ferð­ast með strætó.

Skeifan versti staðurinn í borginni — óháð ferðamáta
Enginn ánægður Hvorki ökumenn né gangandi eða hjólandi vegfarendur virðast ánægðir með Skeifuna. Rannsakendur benda á að bæði hún og Grandi eigi það sameiginlegt að hafa þróast með bílaumferð að leiðarljósi Mynd: Golli

Skeifan kemur verst út allra staða í Reykjavík þegar íbúar eru spurðir um upplifun sína af ferðum og samgöngum. Hún var sá staður sem oftast var nefndur sem neikvæður, óháð því hvaða ferðamáta svarendur notuðu.

Þetta kemur fram í niðurstöðum tveggja ára rannsóknarverkefnis Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands um ferðavenjur og samgöngur í borginni.

Í verkefninu voru jákvæð og neikvæð svæði tengd samgöngum kortlögð út frá svörum þátttakenda. Skeifan skar sig þar skýrt úr á neikvæða endanum. Grandi, hluti Hringbrautar og nokkrir fjölfarnir vegkaflar og gatnamót voru einnig oft tengd neikvæðri upplifun.

Hverfi byggt fyrir bílinn

Rannsakendur benda á að Skeifan og Grandi eigi það sameiginlegt að hafa þróast með bílaumferð að leiðarljósi. Svæðin einkennast af dreifðri verslunarbyggð, stórum bílastæðum, breiðum akbrautum og flóknum gatnamótum.

Þátttakendur gagnrýndu slíkt borgarumhverfi fyrir að vera fyrst og fremst hannað með þarfir ökumanna í huga.

Öllu skárraMiðborgin mældist mun betur fyrir hjá íbúum …
Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
2
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár