Telja Heimilispakka Símans hafa verið skaðlega undirverðlagðan

Sam­keppnis­eft­ir­lit­ið tel­ur að tíma­bund­in til­boð Sím­ans á Heim­il­ispakk­an­um á ár­un­um 2019 til 2021 hafi brot­ið gegn sam­keppn­is­lög­um. Fé­lag­ið hyggst taka til fullra varna í mál­inu.

Telja Heimilispakka Símans hafa verið skaðlega undirverðlagðan

Samkeppniseftirlitið telur að Síminn kunni að hafa brotið gegn samkeppnislögum með tímabundnum tilboðum á svonefndum Heimilispakka á árunum 2019 til 2021.

Þetta kemur fram í tilkynningu Ása hf., móðurfélags Símans, til Kauphallarinnar. Símanum hefur borist andmælaskjal frá Samkeppniseftirlitinu vegna rannsóknar stofnunarinnar á sölu fjarskipta- og sjónvarpsþjónustu félagsins í gegnum Heimilispakkann.

Selt of ódýrt

Samkvæmt frummati Samkeppniseftirlitsins, sem kemur fram í andmælaskjalinu, fólust tiltekin tímabundin tilboð á Heimilispakkanum í svonefndri skaðlegri undirverðlagningu. Eftirlitið telur háttsemina hafa farið gegn samkeppnislögum og skilyrðum sem Samkeppniseftirlitið setti Símanum með ákvörðun árið 2015.

Í þeirr ákvörðun var Símanum gert að tryggja að ólíkir þjónustuþættir væru nægilega aðgreindir, meðal annars í kostnaðarútreikningum, kynningu, sölu, verði og skilmálum, og að þeir væru óháðir hver öðrum í verði og öðrum skilmálum.

Samkeppniseftirlitið útskýrði tilgang ákvæðisins þannig að því væri meðal annars ætlað að koma í veg fyrir samtvinnun viðskipta sem gæti raskað samkeppni. Eftirlitið tók sérstaklega fram að slík samtvinnun gæti átt sér stað með verðlagningu sem hvatti neytendur til að kaupa tvær eða fleiri vörur saman.

Skaðleg undirverðlagning felst almennt í því að markaðsráðandi fyrirtæki selji vöru eða þjónustu á svo lágu verði að samkeppni geti raskast, til dæmis með því að keppinautar eigi erfiðara með að keppa á markaðnum.

Ætla að taka til varna

Andmælaskjal er ekki endanleg ákvörðun Samkeppniseftirlitsins. Með því er fyrirtækinu gerð grein fyrir frummati eftirlitsins og gefinn kostur á að svara því, koma á framfæri athugasemdum og leggja fram gögn áður en endanleg ákvörðun er tekin.

Í tilkynningu Ása er lögð áhersla á að málið snúi að viðskiptaháttum frá árunum 2019 til 2021, eða fyrir fimm til sjö árum. Félagið bendir jafnframt á að skilyrði ákvörðunar Samkeppniseftirlitsins frá 2015, sem vísað er til í andmælaskjalinu, hafi síðar verið felld úr gildi af Landsrétti.

Sá dómur féll í september 2025 og laut að því hvort Samkeppniseftirlitið hefði afgreitt beiðni Símans um niðurfellingu skilyrðanna innan þess frests sem kveðið var á um. Landsréttur taldi svo ekki vera og að skilyrðin hefðu því fallið úr gildi. Dómurinn fól hins vegar ekki í sér niðurstöðu um hvort skilyrðin hefðu verið ógild á árunum 2019 til 2021, þegar háttsemin sem nú er til rannsóknar átti sér stað.

Félagið segist ætla að nýta andmælarétt sinn og „taka til fullra varna“ í málinu. Ásar segjast munu upplýsa um framgang þess eftir því sem tilefni sé til.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Kristrún um Trump: „Þetta er bara móðgun við Íslendinga“
6
StjórnmálBandaríki Trumps

Kristrún um Trump: „Þetta er bara móðg­un við Ís­lend­inga“

Þor­gerð­ur Katrín Gunn­ars­dótt­ir ut­an­rík­is­ráð­herra seg­ir færslu Don­ald Trump, þar sem Ís­land var sýnt und­ir banda­ríska fán­an­um, al­gjör­lega óvið­eig­andi. Kristrún Frosta­dótt­ir for­sæt­is­ráð­herra seg­ir und­ir­tón færsl­unn­ar fá­rán­leg­an og hana móðg­un við Ís­lend­inga, Kan­ada­menn og Græn­lend­inga. Banda­ríski sendi­herr­ann var kall­að­ur á fund vegna máls­ins.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár