Borgarstjóri ræður samflokkskonu sína

Sandra Hlíf Ocares, fyrr­um vara­borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hef­ur ver­ið ráð­in verk­efna­stjóri á skrif­stofu borg­ar­stjóra og borg­ar­rit­ara. Borg­ar­rit­ari seg­ir starf­ið ekki hafa ver­ið aug­lýst því ráðn­ing­in sé tíma­bund­in.

Borgarstjóri ræður samflokkskonu sína
Réði samflokkskonu Hildur Björnsdóttir borgarstjóri hefur ráðið Söndru Hlíf Ocares varaborgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins tímabundið. Mynd: Golli

Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur, hefur ráðið Söndru Hlíf Ocares, fyrrverandi varaborgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, tímabundið sem verkefnastjóra á skrifstofu borgarstjóra.

Í svari borgarritara til Heimildarinnar segir að Sandra hafi hafið störf 1. júlí en í starfi hennar felst undirbúningur, samhæfing og eftirfylgd stefnumótandi verkefna á vegum skrifstofunnar. Þá kemur fram að starfið hafi ekki verið auglýst þar sem um tímabundna ráðningu væri að ræða. Ekki er verið að bæta við stöðugildi á skrifstofunni.

Sandra Hlíf OcaresEr nú verkefnastjóri á skrifstofu borgarstjóra.

Sandra er lögfræðingur að mennt en hún hefur gegnt hlutverki varaborgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og tók við trúnaðarstörfum Helga Áss Grétarssonar sem fyrsti varaborgarfulltrúi flokksins þegar hann sagði sig úr Sjálfstæðisflokknum í byrjun árs. Sandra hefur gegnt hlutverki varafulltrúa í stjórn Félagsbústaða, var áður verkefnastjóri hjá Íslenska byggingavettvangnum og hefur setið í stjórn kærunefndar útlendingamála. 

Hópuppsagnir í borginni

Umfangsmiklar breytingar hafa orðið í sumar eftir að ný borgarstjórn tók við …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Efnahagslegur ávinningur „blasir við“
4
EfnahagsmálHorft til Evrópu

Efna­hags­leg­ur ávinn­ing­ur „blas­ir við“

Hver er kostn­að­ur­inn við Evr­ópu­sam­band­ið og hvað mynd­um við fá til baka? Gylfi Magnús­son, pró­fess­or í hag­fræði, fer yf­ir efna­hags­leg áhrif af mögu­legri að­ild að Evr­ópu­sam­band­inu. Áætl­að er að nettófram­lag Ís­lands gæti ver­ið á bil­inu sex til 15 millj­arð­ar á ári, en pró­fess­or­inn tel­ur efna­hags­leg­an ávinn­ing meiri en út­gjöld­in.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Hvar eru skattgreiðslur þeirra auðugustu?
5
Hátekjulistinn

Hvar eru skatt­greiðsl­ur þeirra auð­ug­ustu?

Marg­ir þeirra efstu á Há­tekju­lista Heim­ild­ar­inn­ar í ár seldu fyr­ir­tæki sem þeir höfðu byggt upp í ára­tugi og fengu ein­skipt­is hagn­að. Kerf­ið ger­ir hins veg­ar auð­ug­ustu Ís­lend­ing­um auð­velt að halda arði og hagn­aði af eigna­sölu inni í fé­lög­um sín­um án þess að greiða af þeim skatt. Rík­ið borg­aði út­svar þeirra á list­an­um sem ein­göngu voru með fjár­magn­s­tekj­ur.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár