Milljónamæringar í nýstofnuðum félögum með og á móti ESB

Fimm ein­stak­ling­ar á há­tekju­list­an­um eru í fram­varða­sveit þeirra sam­taka sem ann­að­hvort berj­ast með eða móti því að Ís­land hefji að­ild­ar­við­ræð­ur við ESB. Sá sem er með hæstu tekj­urn­ar í þess­um hópi fékk yf­ir hundrað millj­ón­ir í árs­tekj­ur og er hlynnt­ur að­ild­ar­við­ræð­um.

Milljónamæringar í nýstofnuðum félögum með og á móti ESB
Evrópuþingið Fjársterkir aðilar sitja bæði í félögum með og á móti aðildarviðræðum við ESB. Mynd: AFP

Tveir forsvarsmenn Áfram Ísland og einn þeirra helsti stuðningsmaður eru á Hátekjulista Heimildarinnar í ár og þrír úr röðum Já til að sjá. Enginn úr Heimssýn né stjórn Evrópuhreyfingarinnar er hins vegar á listanum.

Samtökin fjögur takast nú á um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst um hvort Ísland eigi að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið. Áfram Ísland og Heimssýn berjast gegn því að viðræðurnar verði teknar upp að nýju og vilja að Ísland standi áfram utan ESB.

Já til að sjá berst fyrir já-atkvæði í kosningunum svo ljúka megi viðræðum og leggja mögulegan aðildarsamning síðar fyrir þjóðina, án þess að samtökin taki afstöðu til þess hvort slíkur samningur eigi að verða samþykktur. Evrópuhreyfingin styður einnig áframhald viðræðna en hefur það jafnframt að markmiði að Ísland gangi í Evrópusambandið.

Jónas Hagan GuðmundssonKaupsýslumaðurinn Jónas Hagan Guðmundsson var með um 106 milljónir í árstekjur á síðasta ári.

Jámaður …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Það eru semsagt auðmenn sem vilja "já til að sjá" (eins og þeir viti ekki mætavel hvað er að sjá).
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Efnahagslegur ávinningur „blasir við“
5
EfnahagsmálHorft til Evrópu

Efna­hags­leg­ur ávinn­ing­ur „blas­ir við“

Hver er kostn­að­ur­inn við Evr­ópu­sam­band­ið og hvað mynd­um við fá til baka? Gylfi Magnús­son, pró­fess­or í hag­fræði, fer yf­ir efna­hags­leg áhrif af mögu­legri að­ild að Evr­ópu­sam­band­inu. Áætl­að er að nettófram­lag Ís­lands gæti ver­ið á bil­inu sex til 15 millj­arð­ar á ári, en pró­fess­or­inn tel­ur efna­hags­leg­an ávinn­ing meiri en út­gjöld­in.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Hvar eru skattgreiðslur þeirra auðugustu?
6
Hátekjulistinn

Hvar eru skatt­greiðsl­ur þeirra auð­ug­ustu?

Marg­ir þeirra efstu á Há­tekju­lista Heim­ild­ar­inn­ar í ár seldu fyr­ir­tæki sem þeir höfðu byggt upp í ára­tugi og fengu ein­skipt­is hagn­að. Kerf­ið ger­ir hins veg­ar auð­ug­ustu Ís­lend­ing­um auð­velt að halda arði og hagn­aði af eigna­sölu inni í fé­lög­um sín­um án þess að greiða af þeim skatt. Rík­ið borg­aði út­svar þeirra á list­an­um sem ein­göngu voru með fjár­magn­s­tekj­ur.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár