Minnast Ásgeirs í Bíó Paradís

Tékknesk kvik­mynd og ný ljóða­bók látna skálds­ins og menn­ing­ar­blaða­manns­ins Ásgeirs H. Ing­ólfs­sonar verða í við­burði honum til heið­urs.

Minnast Ásgeirs í Bíó Paradís
Ásgeir H. Ing­ólfs­son Menn­ing­ar­blaða­mað­ur­inn hefði orðið fimm­tugur næsta fimmtu­dag. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Við­burður til heið­urs skáld­inu og menn­ing­ar­blaða­mann­inum Ásgeiri Hrefnu­syni Ing­ólfs­syni verður hald­inn í Bíó Paradís næsta föstu­dag. 

Ásgeir fædd­ist 20. ágúst 1976 og hefði orðið fimm­tugur dag­inn fyrir við­burð­inn. Hann lést 25. jan­úar 2025 innan nokk­urra vikna frá því hann var greindur með ólækn­andi krabba­mein. Á dán­ar­dag­inn í fyrra hafði hann skipu­lagt við­burð á Akureyri, Lífs­kvið­una. Hún var hugsuð sem fögn­uður sköp­unar þar sem Ásgeir ætl­aði að deila sínum verkum. Að honum látnum héldu vinir hans og vel­unn­arar við­burð­inn í sam­ráði við fjöl­skyldu hans.

Í við­tali við Heim­ild­ina hafði Ásgeir hafnað því að orðið „æðru­leysi“ gilti um við­brögð hans við því sem hann kall­aði „dauða­dóm“ en ætl­aði að mæta með því að halda partý til að fagna líf­inu.

„Mér er illa við þetta orð. Kannski hefur það átt vel við í for­tíð­inni þegar við vorum varn­ar­laus­ari skepnur. Vandinn við þetta orð er að það er oft notað á und­ar­legan hátt. Það er stutt síðan margir sögðu að við þyrftum að takast á við afleið­ingar lofts­lags­ham­fara af æðru­leysi. Nei, við hefðum bara átt að vera reið og gera eitt­hvað í því,“ sagði hann.

Í boði frá vinum og velunn­urum Ásgeirs segir að Bíó Paradís hafi verið einn af upp­á­halds­stöðum Ásgeirs á Íslandi. Bæði verða í boð­inu bíó og bók­menntir.

„Við­burð­ur­inn hefst á bíó­sýn­ingu ung­versku kvik­mynd­ar­innar On Body and Soul (Testről éslé­lekről) og í fram­haldi verður útgáfupartí fyrir nýja ljóða­bók Ásgeirs: Næsta stríð. Þar gefst fólki tæki­færi að kaupa bók­ina, spjalla saman og bjóða fram atriði eða upp­lestur í opnum hljóð­nema,“ segir í til­kynn­ing­unni. „Þetta verður fögn­uður í Ásgeirs anda, þar sem allir eru vel­komnir.“

Við­burð­ur­inn hefst klukkan 17 á föstu­dag í Bíó Paradís, Hverf­is­götu.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár